Stytta skammarkrókinn til muna Atli Ísleifsson skrifar 24. febrúar 2025 10:48 Með breytingunum á reglunum er ætlunin að bæta aðgengi og tryggja betri nýtingu tímanna. Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn World Class hafa stytt skráningarbann í hóptíma í líkamsræktarstöðvum fyrirtækisins verulega. Bannið nær nú til þriggja daga en var áður átta dagar.
Þetta kemur fram í tilkynningu World Class til korthafa sinna. Þar segir að breytingarnar séu gerðar á skráningu og afskráningu í hóptíma til að bæta aðgengi og tryggja betri nýtingu tímanna. Skráningartíminn hefur verið styttur í 2 daga og skammarkrókur í 3 daga. Skráning í tíma opnar nú 49 klukkustundum fyrir upphaf tímans en skráning í fyrstu morguntíma klukkan 21 tveimur kvöldum fyrir tímann. Skráningu í tíma lýkur 50 mínútum fyrir upphaf tímans. Eftir að skráningu lýkur, 50 mínútum fyrir tíma, er ekki lengur hægt að afskrá sig. Fólk sem sér ekki fram á að mæta er vinsamlegast beðið um að afskrá sig tímanlega, bæði úr tímum og af biðlistum, svo aðrir geti nýtt plássið. Skráningarbann hjá korthöfum sem gleyma að afskrá sig er nú stytt í þrjá daga en það var áður átta dagar. Skammarkrókurinn gildir um alla tíma. Þá segir að lágmarksfjöldi skráðra sé tíu til að kennsla fari fram.
Líkamsræktarstöðvar Neytendur Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira