Alþingi fyrir sérhagsmuni? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar 31. ágúst 2024 15:00 Nú líður að nýju þingi í sögu lýðveldisins, en fá mál vöktu meiri athygli við þinglok síðastliðið vor en kaup Kaupfélags Skagfirðinga, KS, á öllu hlutafé í kjötiðnaðarfyrirtækinu Norðlenska á Akureyri. Þetta var gert í krafti breytinga á búvörulögum þar sem samkeppnislögum var kippt úr sambandi, þau hreinlega lögð til hliðar. Megin rökin fyrir þeirri aðgerð voru að með þessu væri ætlunin að auðvelda aðilum í landbúnaði að sameinast og stuðla að hagræðingu. En annað, kannski ekki yfirlýst markmið var að gera þeim sem eiga mikið, kleift að eignast meira, þeim stóru að verða stærri, í þessu tilfelli Kaupfélagi Skagfirðinga, sem er eitt stærsta kaupfélag landsins. Hver veit? Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2021, sem er sá nýjasti sem er opinber, og ber heitið „Kaupfélag Skagfirðinga – samstæða“ (e. Conglomerate), kemur fram að velta félagsins var árið 44 milljarðar og hreinn hagnaður félagsins var 8 milljarðar króna. Það er um þriðjungur þess fjár sem íslenskur landbúnaður fékk í styrki frá ríkinu á síðasta ári, sem var alls um 24 milljarðar króna. Metro og ídýfur Samkvæmt þeim ársreikning átti félagið þá alls 21 dótturfélag og er sú flóra æði fjölbreytt. Meðal annars á Kaupfélag Skagfirðinga skyndibitastaðinn Metro, vissir þú það lesandi góður? Eigið fé félagsins var á þessum tímapunkti um 50 milljarðar króna og eignir þess tæpir 80 milljarðar. Það er því alveg ljóst að hér er ekki neinn „kettling“ að ræða, heldur risasamsteypa sem er með puttana í margvíslegri atvinnustarfsemi, allt frá fjárfestingastarfsemi, til innflutnings á korni, framleiðslu á sósum og ídýfum, og skyndibitamat. Það eru því ákveðnar líkur á því að ídýfan með snakkinu þegar horft er á Júróvisjón, komi frá fyrirtæki í eigu KS. En aftur að þessum sameiningargjörningi, sem olli mikilli umræðu, sérstaklega þegar kom í ljós að formaður atvinnuveganefndar, Þórarinn Ingi Pétursson, Framsóknarflokki, átti hlut í fyrirtækinu Búsæld, sem átti hlut í Kjarnafæði, sem svo KS keypti í skjóli nýrra búvörulaga. Hlutur Þórarins var að vísu lítill, en hlutur engu að síður og skekkti því stöðu hans í málinu. Undir eðlilegum kringumstæðum hefði Samkeppniseftirlitið auðvitað átt að koma að þessu máli, en með þeim breytingum sem gerðar voru á búvörulögum, var einfaldlega búið að setja það ,,á bekkinn“ eins og sagt er. Það hafði því ekkert um málið að segja. Sem hljóta að teljast ótrúleg vinnubrögð, því Samkeppnisyfirlitið á meðal annars að gæta hagsmuna almennra neytenda. Á vefsíðu þess segir orðrétt um tilgang samkeppnislaga: „Markmið samkeppnislaga er að efla virka samkeppni í viðskiptum. Samkeppniseftirlitinu ber að ná markmiðum samkeppnislaga með því að vinna gegn óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinna gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaðnum“ (feitletranir eru höfundar). Augljóst er að þessi gjörningur KS stuðlar að fákeppni og auðveldar ekki aðganga nýrra keppinauta að markaðnum. Hinn stóri verður því stærri. Hér er því beint unnið gegn tilgangi og anda samkeppnislaga. „Alveg eins og á Norðurlöndunum“ Í umræðum um málið sagði núverandi fjármálaráðherra Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannesson, að nú væri búið að færa þessi mál í það horf sem væri á hinum Norðurlöndunum: „Aðalatriðið í þessu máli er það að sú löggjöf sem hér var sett er í samræmi við löggjöf annarra landa,“ sagði Sigurður Ingi. Efnislega hið sama sögðu einnig áðurnefndur Þórarinn, sem og núverandi matvælaráðherra, Bjarkey Olsen: „Þetta er tíðkað á Norðurlöndunum og við erum að fylgja í fótspor þeirra,“ sagði Bjarkey á RÚV. Þar með eru skilaboðin þau að „þetta eigi bara að vera svona.“ Þetta er hins vegar rangt og þessu mótmælti Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins í frétt á RÚV og tók dæmi frá Noregi. Annað dæmi frá Svíþjóð verður nefnt hér, sem höfundur þessarar greinar aflaði sér upplýsinga um, m.a. fá sænskum samkeppnisyfirvöldum. Í lok árs 2023 keypti landbúnaðarfyrirtækið „Lantmännen“ kjötvinnslufyrirtækið HKScan, sem þá var með um 1800 starfsmenn og um 8 milljarða sænskar krónur í veltu (sem er um 100 milljarðar ísk). Þetta fyrirtæki er í eigu 18.000 sænskra bænda og umsvifamikið í framleiðslu á búvörum. Strax í þessu tilfelli var gerð krafa um að erindið færi til Samkeppnisstofnunar Svíþjóðar (Konkurrensverket), en það þurfti líka að fara fyrir framkvæmdastjórn ESB, þar sem Svíþjóð er í sambandinu. Hefur framkvæmdastjórnin forgang, þar sem fyrirtækin starfa og selja vörur í fleiri en einu ESB-ríki. Í þessu tilfelli nægði að málið færi fyrir framkvæmdastjórn ESB, þar sem samanlögð velta fyrirtækjanna var undir 2.5 milljörðum evra. Samruninn var hins vegar tilkynntur til sænsku samkeppnisstofunnar, en umfjöllun ESB nægði. Þá ber að taka fram að samruninn í Svíþjóð var einnig ,,mátaður“ við EES-samninginn, sem Ísland er aðili að, sérstaklega grein 57, sem fjallar um hindranir á markaði. Ekki er annað hægt að sjá en að kaup KS gegn grein 57 í samningunum, þar sem kaupin efla yfirburðastöðu KS á markaði. KS er eins og staðan er nú með um 67% af allri kinda og nautgripakjötsframleiðslu á landinu (Bændablaðið, 11. Júlí 2024). Þetta er verulega „góð“ markaðsstaða, svo ekki sé meira sagt. Á vordögum 2024 fékk svo samruninn í Svíþjóð samþykki ESB, allt með það að markmiði að viðhalda heilbrigðum reglum á markaði og þar með að setja hag neytenda í forgang. Þetta kallast alvöru eftirlit og fagleg stjórnsýsla. Er það því einfaldlega rangt sem haldið er að okkur í fjölmiðlum að „svona séu hlutirnir í nágrannalöndum okkar,“ þ.e.a.s. eins og þeir væru hér, að samkeppnislög væru bara lögð til hliðar þegar þess þyrfti. Virðing fyrir samkeppni Nágrannalönd okkar eru faglegri heldur en það, þar er borin virðing fyrir samkeppni og lögum. Hér er hins vegar almenningi boðið upp á að kippa lögum úr sambandi eftir hentugleika og að sniðganga stofnanir sem eiga að tryggja samkeppni og að eðlileg markaðslögmál í séu viðhöfð. Sérhagsmunir hafa hér því forgang. Skilaboðin í þessu eru að lög skipti í raun ekki máli og að þeim megi víkja til hliðar þegar ákveðnir hagsmunir krefjist þess. Það er eitthvað verulega bogið við það. Gera má svo ráð fyrir því að í Danmörku og Finnlandi sé staðan eins og í Svíþjóð, meðal annars vegna þess að bæði löndin eru í ESB og þar gilda því sömu reglur. Það er einfaldlega glórulaust að hægt sé að kippa samkeppnislögum úr sambandi vegna hagsmuna ákveðinna aðila. Þar með eru hagsmunir neytenda settir til hliðar og þá er það einnig líka ósanngjarnt gagnvart samkeppnisaðilum, skekkir samkeppnisstöðu þeirra. Kallast þetta ekki bara spilling? Og allt stimplað af Alþingi! Í raun er það rannsóknarefni að mönnum þarna niður á Austurvelli hafi dottið þetta í hug, það mætti spyrja sem svo; hver fékk þessa hugmynd? Og allt undir ríkisstjórnarforystu flokks sem talar flokka mest um frjálsan markað, samkeppni og slíkt. Margar „gloríur“ Alþingi hefur gert marga „gloríuna“ í gegnum tíðina, um þetta er meðal annars fjallað í nýlegri og merkilegri bók, „Um Alþingi“ eftir Dr. Hauk Arnþórsson, sem segir bæði að lagasetningu og vinnubrögðum þess hafi verið ábótavant í gegnum tíðina. Til að mynda kom kvótafrumvarpið á sínum tíma, 1983, nánast fullklárað frá LÍÚ (Landssambandi íslenskra útvegsmanna) á sínum tíma og var í raun bara „stimplað“ af þinginu. Önnur dæmi er stjórnlagaráð í kjölfar hrunsins 2008 og skipan dómara í Landsrétt á sínum tíma. Erlendar eftirlitsstofnanir hafa sett ofan í við Alþingi, vegna vinnubragða þess. Umfjöllun Alþingis um þau lög sem leyfðu kaup KS hefur fengið mikla gagnrýni (í raun efni í aðra grein) því það frumvarp sem að lokum var samþykkt var eitthvað allt annað en kom fram í upphafi. Hér verður Alþingi heldur betur að taka sig á, en gerningar sem þessir kallast því miður að setja „ólög“ að mati þess sem skrifa. Vandamál í íslenskum landbúnaði ber ekki að leysa með þessum hætti. Og því miður stendur spurningin eftir; eiga sérhagsmunir enn, árið 2024, beina og greiða leið inn á Alþingi? Höfundur er stjórnmálafræðingur og almennur neytandi (m.a. lambakjöts). Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Samkeppnismál Landbúnaður Alþingi Undanþága kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum Mest lesið Úrræðaleysi í helgreipum – þegar kerfið bregst börnum með fjölþættan vanda Þóranna Ólafsdóttir Skoðun Um peninga annarra Björg Magnúsdóttir Skoðun Veit Inga hvað hún syngur? Íris Róbertsdóttir Skoðun Er betra að fólk sé sett á sakamannabekk en að stjórnmálamenn vinni vinnuna sína? Ólafur Stephensen Skoðun Flott hjá læknum! Siv Friðleifsdóttir Skoðun What is Snorri Másson talking about? Colin Fisher Skoðun Og ári síðar er málið enn „í ferli“ Eva Hauksdóttir Skoðun Fyrir dómstólum fyrir að verja líf – augliti til auglitis við Kristján Loftsson Anahita Sahar Babaei Skoðun Hvers vegna læra börnin þín ekki neitt? Svarið gæti verið í speglinum Jónas Sen Skoðun Í gamla daga voru allir læsir Eydís Hörn Hermannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Menntun barna byrjar ekki í kennslustofunni - ekki dæma skólann áður en þú skilur hann Agnar Már Másson skrifar Skoðun Um peninga annarra Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Úrræðaleysi í helgreipum – þegar kerfið bregst börnum með fjölþættan vanda Þóranna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Erum við að reyna að láta rangan hóp leysa húsnæðisvandann? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Fyrir dómstólum fyrir að verja líf – augliti til auglitis við Kristján Loftsson Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun What is Snorri Másson talking about? Colin Fisher skrifar Skoðun Sjálfskaparvíti meirihlutans í Reykjavík Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Öxlum ábyrgð og segjum satt Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hvers vegna er endurtekið ófremdarástand á bráðamóttökunni? Jón Magnús Kristjánsson skrifar Skoðun Einföldum lífið í úthverfunum Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Sigfús í sexuna! Mörður Árnason skrifar Skoðun Drengirnir okkar, Ísland vs Finnland Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Án tónlistar væri lífið mistök Unnur Malín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Veit Inga hvað hún syngur? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Með einkarétt á internetinu? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Tilraunastarfsemi stjórnvalda á kostnað matvælaöryggis og lýðheilsu Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Viðkvæmni fyrir gríni? Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Tímabær endurskoðun jafnlaunavottunar Hákon Skúlason skrifar Skoðun Ertu að kjósa gegn þínum hagsmunum? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Úr neðsta helvíti Dantes Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun Íbúar í Reykjavík skipta máli ‒ endurreisum íbúaráðin Sigfús Ómar Höskuldsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd kallar á endurmat á öryggi raforkuinnviða Halldór Halldórsson skrifar Skoðun Í gamla daga voru allir læsir Eydís Hörn Hermannsdóttir skrifar Skoðun Kvartanir eru ekki vandamál – viðbrögðin eru það Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Vatnsmýrin rís Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Er betra að fólk sé sett á sakamannabekk en að stjórnmálamenn vinni vinnuna sína? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ung til athafna Hildur Rós Guðbjargardóttir,Eyrún Fríða Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað með Thorvaldsen börnin á árunum 1967 til 1974? Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi: Hvers vegna skiptir það máli? Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Sjávarútvegur framtíðarinnar – friðun, vistvænni veiðar og réttlátara kvótakerfi Arnar Helgi Lárusson skrifar Sjá meira
Úrræðaleysi í helgreipum – þegar kerfið bregst börnum með fjölþættan vanda Þóranna Ólafsdóttir Skoðun
Er betra að fólk sé sett á sakamannabekk en að stjórnmálamenn vinni vinnuna sína? Ólafur Stephensen Skoðun
Fyrir dómstólum fyrir að verja líf – augliti til auglitis við Kristján Loftsson Anahita Sahar Babaei Skoðun
Skoðun Menntun barna byrjar ekki í kennslustofunni - ekki dæma skólann áður en þú skilur hann Agnar Már Másson skrifar
Skoðun Úrræðaleysi í helgreipum – þegar kerfið bregst börnum með fjölþættan vanda Þóranna Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fyrir dómstólum fyrir að verja líf – augliti til auglitis við Kristján Loftsson Anahita Sahar Babaei skrifar
Skoðun Hvers vegna er endurtekið ófremdarástand á bráðamóttökunni? Jón Magnús Kristjánsson skrifar
Skoðun Tilraunastarfsemi stjórnvalda á kostnað matvælaöryggis og lýðheilsu Þorsteinn Narfason skrifar
Skoðun Er betra að fólk sé sett á sakamannabekk en að stjórnmálamenn vinni vinnuna sína? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Sjávarútvegur framtíðarinnar – friðun, vistvænni veiðar og réttlátara kvótakerfi Arnar Helgi Lárusson skrifar
Úrræðaleysi í helgreipum – þegar kerfið bregst börnum með fjölþættan vanda Þóranna Ólafsdóttir Skoðun
Er betra að fólk sé sett á sakamannabekk en að stjórnmálamenn vinni vinnuna sína? Ólafur Stephensen Skoðun
Fyrir dómstólum fyrir að verja líf – augliti til auglitis við Kristján Loftsson Anahita Sahar Babaei Skoðun