Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Eiður Þór Árnason skrifar 1. ágúst 2024 11:51 Íranir sjást hér fylgja vöruflutningabíl sem ber líkkistur Haniyeh og lífvarðar hans. AP/Vahid Salemi Útför Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas fór fram í Íran í dag. Hann féll í loftárás í höfuðborginni Tehran sem óttast er að geti leitt til stigmögnunar átaka í heimshlutanum.
Yfirvöld í Ísrael eru sökuð um að standa að baki árásinni en þarlend stjórnvöld hafa ekki lýst yfir ábyrgð á henni. Ísraelsher staðhæfði í dag að Mohammed Deif, annar hátt settur leiðtogi Hamas og yfirmaður hernaðararms samtakanna hafi drepist í árás hersins í júlí. Fulltrúar Hamas hafa ekki staðfest þessar fregnir. Ali Khamenei, æðsti klerkur Írans og fulltrúar herskárra palestínskra samtaka sem njóta stuðnings hans biðu bænir yfir kistu Haniyeh og lífvarðar hans í Tehran-háskóla í dag. Við hlið þeim stóð Masoud Pezeshkian, nýr forseti landsins. Útsendingar íranska ríkissjóvarpsins sýndu hvernig líkkisturnar voru færðar um borð í vöruflutningabíl sem keyrði að Azadi-torgi í Tehran á meðan fólk fyllti göturnar og fleygði blómum í átt að kistunum. AP-fréttaveitan greinir frá þessu en eftir athöfnina verður lík Haniyeh flutt til Katar þar sem það verður borið til grafar. Stóð við hlið forseta skömmu áður Haniyeh kom til Tehran til að vera viðstaddur innsetningu Pezeshkian í embætti forseta síðasta þriðjudag. Ljósmyndir sýndu Hamas-leiðtogann faðma forsetann og hafði hann áður fundað með Khamenei, æðsta leiðtoga Íran. Nokkrum klukkustundum síðar var Haniyeh drepinn í loftárás en hún hæfði íbúðahúsnæði sem hann notaði í Tehran. Írönsk yfirvöld segja árásina til rannsóknar og hafa heitið hefndum. Ísraelar höfðu áður gefið út að þeir vildu drepa drepa Haniyeh og aðra leiðtoga Hamas vegna árásar samtakanna á suðurhluta Ísraels þann 7. október sem leiddi til núverandi átaka á Gasa. Stjórnvöld í Íran styðja Hamas, sem og Hesbollah og aðra herskáa palestínska hópa sem berjast gegn Ísrael á Gasa. Kallar eftir vopnahléi Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði að „allir aðilar“ í Mið-Austurlöndum yrðu að forðast aðgerðir sem gætu valdið frekari átökum á svæðinu. Blinken sagði að vopnahlé milli Ísraela og Hamas á Gasa væri eina leiðin til að rjúfa núverandi vítahring ofbeldis og þjáningar. Blinken nefndi hvorki Ísrael, Íran né Hamas á nafn í ummælum sínum sem hann lét falla í Ulaaanbataar, höfuðborg Mongólíu í dag. Um 39.480 Palestínumenn hafa farist og meira en 91.100 særst í árásum Ísraelshers á Gasa síðastliðna tíu mánuði, að sögn heilbrigðisyfirvalda á Gasa. Á sama tíma eru yfir 80 prósent íbúa á svæðinu talin vera á flótta eða um 2,3 milljónir manna. Búa langflestir við bágbornar aðstæður í tjaldbúðum á suðvesturhorni Gasa með takmarkað aðgengi að fæðu og vatni. Ísrael og Íran hafa átt í langvarandi átökum og var óttast að stríð gæti brotist út fyrr á þessu ári þegar þegar Ísrael réðst á sendiráð Írans í Damaskus í apríl. Íranir svöruðu árásinni og bæði ríkin gerðu áður óþekktan fjölda árása á landsvæði hvors annars. Eftir aðkomu alþjóðasamfélagsins tókst að draga úr spennunni áður en frekari átök brutust út. Við innsetningarathöfn Pezeshkian sýndi hann Palestínumönnum stuðning í ræðu sinni og sagði „Íran heimta heim þar sem engir draumar palestínskra barna eru grafnir undir rústum heimilis þeirra.”
Íran Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum Sérfræðingur í alþjóðamálum segir ólíklegt að dráp Ismail Haniyeh muni leiða til meiriháttar milliríkjaátaka þrátt fyrir að þær muni hafa ýmsar afleiðingar í för með sér. Ástæða þess séu þeir miklu hernaðarlegu yfirburðir sem Ísrael hefur yfir nágrannaríkin. 31. júlí 2024 21:00 „Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Sveinn Rúnar Hauksson læknir og heiðursborgari í Palestínu minnist Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas sem var ráðinn af dögum í Íran í nótt, í samfélagsmiðlafærslu. Þar segir hann Haniyeh hafa verið öflugan leiðtoga andspyrnuhreyfingar en í leið maður sátta og friðar. 31. júlí 2024 18:57 Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir það skyldu stjórnvalda í Tehran að hefna drápsins á Ismail Haniyeh, pólitískum leiðtoga Hamas. Ísrael hafi lagt grundvöll að „harkalegum refsiaðgerðum“ með því að drepa Haniyeh. 31. júlí 2024 10:21 Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Áhyggjur af stigmögnun átaka í tengslum við stríð Ísrael gegn Hamas fara nú vaxandi eftir að fregnir bárust af því að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi samtakanna, hefði verið ráðinn af dögum í Íran. 31. júlí 2024 06:46 Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Veður Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Erlent Fleiri fréttir Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Íhugar að draga úr hernaði í Íran Sjá meira
Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum Sérfræðingur í alþjóðamálum segir ólíklegt að dráp Ismail Haniyeh muni leiða til meiriháttar milliríkjaátaka þrátt fyrir að þær muni hafa ýmsar afleiðingar í för með sér. Ástæða þess séu þeir miklu hernaðarlegu yfirburðir sem Ísrael hefur yfir nágrannaríkin. 31. júlí 2024 21:00
„Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Sveinn Rúnar Hauksson læknir og heiðursborgari í Palestínu minnist Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas sem var ráðinn af dögum í Íran í nótt, í samfélagsmiðlafærslu. Þar segir hann Haniyeh hafa verið öflugan leiðtoga andspyrnuhreyfingar en í leið maður sátta og friðar. 31. júlí 2024 18:57
Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir það skyldu stjórnvalda í Tehran að hefna drápsins á Ismail Haniyeh, pólitískum leiðtoga Hamas. Ísrael hafi lagt grundvöll að „harkalegum refsiaðgerðum“ með því að drepa Haniyeh. 31. júlí 2024 10:21
Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Áhyggjur af stigmögnun átaka í tengslum við stríð Ísrael gegn Hamas fara nú vaxandi eftir að fregnir bárust af því að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi samtakanna, hefði verið ráðinn af dögum í Íran. 31. júlí 2024 06:46