Nokkrar góðar ástæður til að svindla á örorkukerfinu Eiður Welding skrifar 11. júní 2024 08:00 Allt frá blautu barnsbeini vissi ég nákvæmlega hvert ég vildi stefna í lífinu, ég vildi vaða í seðlum án þess að vinna neitt og vera laus við allt vesen og stress. Ég áttaði mig aldrei á af hverju fólk væri að leggja á sig að fara í nám til að læra einhverja iðn eða stefna á háskólanám, bæði með tilheyrandi kostnaði og álagi. Nei, ég ætlaði sko ekki að strita og púla að óþörfu. Ég ákvað að redda mér örorkumati og lifa ljúfa lífinu án þess að lyfta fingri. Það er nú meira ruglið að fólk striti allt sitt líf eins og hamstur á hjól. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því lengur því í þessari grein fer ég yfir hvernig þú getur synt í seðlum, sullað í kampavíni og kavíar og fengið frítt í sund að auki. Hugsaðu þér snilldina í því að fá lækni til þess að skrifa upp á þú sért ,,fatlafól“ til lífstíðar, fyllir út spurningalista og umsókn og það er bingó á borði sjö! Nú getur veislan hafist. Berðu þig ömurlega hvert sem þú ferð Kæri lesandi, þegar margra mánaða ferli er afstaðið þá er bara að hlamma sér í sófann og horfa á Glæstar vonir sem nóg er af. Það er þó eitt sem ber að varast, það er mikilvægt að bera sig illa hvert sem þú ferð svo fólk haldi nú ekki að þú sért að svindla á okkar góða kerfi. Allt er ömurlegt hjá þér, alltaf, engin von og ekkert er fram undan en svo kveður þú og gengur hlæjandi í bankann. Það heldur betur gott framundan hjá þér en gættu þess að gera ekkert skemmtilegt og vertu bara helst heima hjá þér því þú hefur hvort sem er ekki efni á neinu öðru á strípuðum örorkulífeyri. Já, gott er það og full ástæða til þess að væla sig inn í þessa paradís strax í dag. Fjöldi örorkulífeyristaka og bótasvik Því miður verður ekki lengi friður í paradís þar sem nú liggur fyrir Alþingi fyrirspurn frá þingmanni Sjálfstæðisflokksins um fjölda örorkulífeyristaka og bótasvik. Í fyrirspurninni er m.a. óskað eftir upplýsingum um hvaða rannsóknir og niðurstöður liggja fyrir um umfang bótasvika sem felast í því að einstaklingar eru metnir öryrkjar án þess að gildar ástæður liggi þar að baki. Nú reynir á þig kæri lesandi hvort þú hefur það sem til þarf til að komast í VIP klúbbinn. Þegar smásjá öryrkjaeftirlitsins er dregin fram er vænlegast að vanda vel til verka 24 tíma sólahrings, sjö daga vikunnar. Núna er rétti tíminn til að dusta rykið af spelkunum, burðast með öndunarkút um götur og torg og segja öllum að þú sért geðveikur út af inngöngu Íslands í NATO líkt og Ingvar E. Sigurðsson gerði svo listilega í kvikmyndinni Englar alheimsins. Óþekktur hlutur á pokasvæði Ég verð því miður að hryggja þig kæri lesandi því ég hef ekki verið að segja þér satt. Sannleikurinn er sá að það er enginn kavíar né kampavín í paradís örorkukerfisins en þar má þó finna kranavatn og oft tómlegan bónuspoka. Ef þú átt ekki íbúð áður en þú færð örorkumat og ert án ríkra ættingja sem eru tilbúnir til að hlaupa undir bagga getur þú gleymt hugmyndinni um að eignast eigið húsnæði með tilheyrandi öryggi, enda ómögulegt að fá greiðslumat með örorkulífeyri auk þess sem hlutdeildarlán virka illa fyrir fatlað fólk. Kerfið heldur þétt utan um fjárhagsupplýsingar þeirra sem treysta á þetta mikilvæga öryggisnet og mörg dæmi eru um að örorkulífeyristakar lendi í skuld við Tryggingastofnun (TR) þegar loksins birtir til, t.d. þegar fólk fær óvænt afturvirka eingreiðslu frá sínum lífeyrissjóði. Að fá örorkumat er ekki einfalt ferli líkt og sjálfsafgreiðsla í matvöruverslun er fyrir flesta. Fatlað fólk er fjölbreyttur hópur fólks og tegund fötlunar getur verið af ýmsum toga. Sumt fólk fæðist fatlað en aðrir fatlast síðar á lífsleiðinni. Fyrir seinni hópinn bíður langt endurhæfingarferli sem því miður skilar ekki alltaf árangri. Það er þó ekki nóg að sérfræðilæknar og annað fagfólk sem vinnur að endurhæfingu viðkomandi telji að hún sé fullreynd heldur þarf sá hinn sami að standast mat skoðunarlæknis og tryggingalæknis á vegum TR. Það er ekki auðvelt að komast í gegnum sigtið og dæmi eru um að einstaklingar fái ítrekað þá niðurstöðu að endurhæfing sé ekki fullreynd þrátt fyrir að allt sem stendur til boða skili ekki árangri. Þau ykkar sem kannast við sjálfsafgreiðslukassa sem gargar „óþekktur hlutur á pokasvæði!” þrátt fyrir að allt hafi verið stimplað inn, getið ímyndað ykkur að vera föst fyrir framan kassann árum saman, hlustandi á sama svarið auk langvarandi framfærslu óöryggis fyrir ykkur og ykkar fjölskyldu. Panama norðursins? Er það virkilega góð ástæða að leggja á sig allt þetta umstang fyrir greiðslur undir lágmarkslaunum og sundkort til þess eins að vera umsvifalaust hafnað af skoðunar- og tryggingarlæknum TR? Meira að segja fólk með flóknar fatlanir á erfitt með að komast í gegnum nálarauga TR. Önnur algengasta spurningin sem fólk spyr við fyrstu kynni á eftir nafni er „og hvað gerir þú?” Sú spurning veldur mörgum örorkulífeyristökum kvíða enda leynast fordómar víða gagnvart þeim sem geta ekki tekið þátt á vinnumarkaði. Hluti af þessum fordómum er tilkominn vegna fáfræði um líf og aðstæður fatlaðs fólks, jafnvel svo að fólk telur okkur vera letingja sem nenni ekki að vinna. Háttvirtur þingmaður er velkominn í kaffispjall, fræðslu og greiðsluseðlaskoðun hjá okkur í UngÖBÍ og hvetjum við hann jafnframt til að setja sama metnað í rannsókn innherjasvika og samráðs fyrirtækja. „Það er flókið að eiga pening á Íslandi“ svo vitnað sé í núverandi fjármálaráðherra, en TR er ekki Panama norðursins. sem gerir letingjum kleift að lifa hinu ljúfa lífi á kostnað skattgreiðenda. Við þurfum að færa umræðuna á hærra plan, setja okkur í spor hvers annars, vinna gegn fordómum og stuðla að inngildingu allra inn í íslenskt samfélag. Höfundur er formaður UngÖBÍ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun