Þrír nýir stjórnendur hjá Festi Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 6. júní 2024 13:06 Gísli Bjarnason, Andri Kristinsson og Sandra Björk Björnsdóttir. Aðsend Festi hefur ráðið þrjá nýja forstöðumenn á fjármála- og rekstrarsvið félagsins. Andri Kristinsson tók við starfi forstöðumanns innheimtu- og fjárstýringar, Gísli Heiðar Bjarnason tók við starfi forstöðumanns viðskiptagreindar og greininga, og Sandra Björk Björnsdóttir tók við starfi forstöðumanns reikningshalds og launavinnslu.
Andri kemur til Festi frá Arion banka þar sem hann hefur starfað frá árinu 2016 á fjármála- og áhættustýringarsviði, síðast sem forstöðmaður áhættueftirlits. Fyrir þann tíma, eða á árunum 2009 – 2016, starfaði Andri hjá endurskoðunarskrifstofunni PwC á Íslandi við endurskoðun, uppgjör, rekstrarráðgjöf og rannsóknarvinnu. Andri er með B.sc. í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík, meistarapróf í reikningshaldi og endurskoðun M.acc frá Háskóla Íslands og er löggiltur endurskoðandi. Gísli kemur til Festi frá Greiðslumiðlun en starfaði áður sem deildarstjóri viðskiptagreindar hjá Sýn á árunum 2021-2022. Á árunum 2004 – 2020 starfaði Gísli hjá Össuri og Norvik/Kaupás/Festi við þróun á fjárhags- og viðskiptagreindarkerfum félaganna og hefur því gríðarlega reynslu á þessu sviði. Gísli er með B.sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Sandra Björk Björnsdóttir tók við stöðu forstöðumanns reikningshalds og launavinnslu í október 2023 en hún hóf störf á fjármálasviði Festi í maí 2020 sem sérfræðingur í reikningsskilum og samstæðureikningsskilum á uppgjörssviði. Á árunum 2005 – 2020 starfaði Sandra sem sérfræðingur hjá Icelandair Group á fjármálasviði við uppgjör og samstæðuuppgjör fyrir félögin innan Icelandair Group samstæðunnar. Sandra er með B.sc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. „Innan Festi starfar stór samhentur hópur fólks með mikla reynslu og sérþekkingu, hvert á sínu sviði. Við erum gríðarlega ánægð með að fá þessa öflugu stjórnendur til liðs við okkur. Þekking þeirra og reynsla mun nýtast vel innan okkar sterka teymis til að ná fram enn betri árangri fyrir félögin okkar öll, þ.e. N1, Krónuna, ELKO, Bakkann Vöruhótel og Yrki eignir,“ er haft eftir Magnúsi Kr. Ingassyni, framkvæmdastjóra fjármála- og rekstrarsviðs Festis í tilkynningu.
Vistaskipti Festi Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira