Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Samúel Karl Ólason skrifar 22. maí 2024 23:00 Samuel Alito, þykir meðal íhaldssömustu dómara Hæstaréttar Bandaríkjanna. AP/J. Scott Applewhite Síðasta sumar blakti annar umdeildur fáni fyrir utan sumarbústað hæstaréttardómarans Samuel Alito í New Jersey Í Bandaríkjunum. Fáninn hefur á undanförnum árum verið bendlaður við hreyfingu íhaldssamra Bandaríkjamanna sem vilja að hin kristna trú hafi stærra hlutverk þegar kemur að stjórnun ríkisins og við stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta.
Fregnir bárust nýverið af því að dagana eftir að stuðningsmenn Trumps réðust á þinghúsið í janúar 2021 blakti bandaríski fáninn á hvolfi við heimili Alito. Í kjölfarið sagði hann að Martha-Ann, eiginkona hans, hefði hengt fánann upp vegna deilna við nágranna þeirra. Sjá einnig: „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Bandaríska fánanum hefur ítrekað verið flaggað á hvolfi í gegnum árin og í margvíslegum tilgangi. Hann hefur meðal annars táknað það að neyð ríki í Bandaríkjunum. Eftir forsetakosningarnar 2020, sem Trump tapaði gegn Joe Biden, og samhliða ítrekuðum lygum Trumps um að kosningasvindl hefði kostað hann sigur og viðleitni hans og bandamanna hans til að snúa úrslitum kosninganna, hafa stuðningsmenn Trumps notað fánann á hvolfi við mótmæli og á kosningafundum. Bandaríska fánanum flaggað á hvolfi við þinghús Bandaríkjanna. Stuðningsmenn Trumps hafa tileinkað sér fánann á hvolfi.Getty/Brent Stirton Annar fáni sem stuðningsmenn Trumps hafa eignað sér á undanförnum árum er hinn svokallaði furufáni, eða „Beiðni til himna“-fáninn. Það er hvítur fáni með mynd af furu sem á stendur: „An Appeal to heaven“ eða Beiðni til himna. Í frétt New York Times, sem sagði einnig frá fyrri fánanum, segir að myndir og viðtöl við íbúa nærri sumarbústaðnum bendi til þess að fánanum hafi verið flaggað í júlí, ágúst og í september í fyrra. Óljóst sé hvort hann hafi verið við hún allan þennan tíma. Alito neitaði að svara spurningum blaðamanna um fánann í dag um það hvað fánanum væri ætlað að tákna og hvort hann samræmdist skuldbindingum hans sem hæstaréttardómara. Fáninn blakti ekki á fánastönginni þegar blaðamenn bar að garði í dag. A post from August 2023 I totally missed showing the flag:https://t.co/3serp7PRLb— Aric Toler (@AricToler) May 22, 2024 Þessi fáni var upprunalega búinn til á tímum frelsisstríðs Bandaríkjanna og táknaði andstöðu gegn yfirvöldum Breta í Bandaríkjunum. Fáninn var að mestu gleymdur þar til á síðasta áratug þegar íhaldssamir og trúaðir Bandaríkjamenn fóru að flagga honum á nýjan leik. Þar hefur maður sem heitir Dutch Sheets. Samkvæmt NYT hefur hann myndað fjar-hægri hreyfingu trúaðra sem vinnur að því að auka vægi kristni í opinberri stjórnsýslu Bandaríkjanna. Leiðtogar þessarar hreyfingar hafa bundið miklar vonir við Alito og afstöðu hans til málefna eins og þungunarrofs, hjónabanda samkynja para og trúfrelsis. Furufáninn sást víða við þinghúsið í Washington DC þann 6. janúar 2021.Getty/Brent Stirton Í október í fyrra talaði Sheets um Alito í messu. Vísaði hann meðal annars til þess að dómarinn hefði skrifaði dómsorð meirihluta hæstaréttar þegar stjórnarskrárvarinn réttur kvenna til þungunarrofs var felldur úr gildi og sagði að nýjum áfanga í því ferli að umbreyta hæstarétti hefði verið náð. Sheets lýsti því yfir að í gegnum hæstarétt yrði markmiðum guðs varðandi opinberar stofnanir Bandaríkjanna náð fram. Hreyfingin hefur einnig verið bendluð við Trump og hafa prestar sem tilheyra henni gefið honum furufána. Sheets og aðrir leiðtogar tóku þátt í viðleitni Trumps til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020 og dreifðu lygum hans um kosningasvik í kirkjum og í sjónvarpi. Fjölmargir báru fánann þegar árásin var gerð á þinghúsið. Þá var markmið stuðningsmanna Trumps að koma í veg fyrir formlega staðfestingu á niðurstöðum forsetakosninganna 2020. Með mörg mál tengd Trump til skoðunar Hæstiréttur hefur margvísleg mál til umfjöllunar um þessar mundir sem snúa að Trump og stuðningsmönnum hans sem réðust á þinghúsið. Meðal þess sem dómarar hafa til skoðunar er hvort Trump njóti friðhelgi fyrir meint brot hans frá því þegar hann var forseti. Úrskurðar hæstaréttar á næstu mánuðum gætu stöðvað málaferli gegn Trump og það hvort hægt sé að ákæra stuðningsmenn hans vegna árásarinnar á þinghúsið. Dómarar hæstaréttar hafa á undanförnum mánuðum verið gagnrýndir fyrir ákvarðanir sem Trump hefur hagnast á. Þeir hafa haft hraðar hendur þegar það hefur hentað Trump en dregið lappirnar í öðrum málum. Alito er ekki fyrsti dómarinn sem er bendlaður við stoðlausar samsæriskenningar Trump um meint misferli í forsetakosningunum 2020. Ginni Thomas, eiginkona Clarence Thomas dómara, tók þannig virkan þátt í að reyna að hnekkja úrslitum kosninganna. Thomas hefur hafnað því að víkja í málum sem tengjast kosningunum. Sjá einnig: Krefjast þess að Thomas komi ekki að máli Trumps
Bandaríkin Hæstiréttur Bandaríkjanna Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Tengdar fréttir Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag vera opinn fyrir því að takmarka aðgengi Bandaríkjamanna að getnaðarvörnum og að framboð hans myndi brátt birta stefnuskjal um málefnið. Þetta sagði hann í sjónvarpsviðtali, skömmu áður en hann dróg í land og sagði að ummæli sín hefðu verið rangtúlkuð. 21. maí 2024 23:53 Samið um kappræður í júní og september Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafa samþykkt að mætast í tveimur kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. 16. maí 2024 07:09 Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Málaferlum í skjalamálinu svokallaða hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Dómarinn í málinu, Aileen M. Cannon, ákvað upprunalega að réttarhöldin ættu að hefjast í maí en nú segir hún það ekki í boði, því hún þurfi að taka svo magar ákvarðanir sem varða flókna anga þessa máls og framkvæmd réttarhaldanna. 8. maí 2024 14:14 Vill herja á Trump vegna þungunarrofs Miklar deilur mynduðust á þingi Arizona í Bandaríkjunum í gær þegar Repúblikanar komu í veg fyrir umræðu um að fella úr gildi 160 ára gömul lög um bann við þungunarrofi sem voru nýverið endurvakin af hæstarétti ríkisins. „Skömm, Skömm!“ var kallað í þingsalnum þegar umræðan var stöðvuð. 11. apríl 2024 16:17 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira
Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag vera opinn fyrir því að takmarka aðgengi Bandaríkjamanna að getnaðarvörnum og að framboð hans myndi brátt birta stefnuskjal um málefnið. Þetta sagði hann í sjónvarpsviðtali, skömmu áður en hann dróg í land og sagði að ummæli sín hefðu verið rangtúlkuð. 21. maí 2024 23:53
Samið um kappræður í júní og september Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafa samþykkt að mætast í tveimur kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. 16. maí 2024 07:09
Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Málaferlum í skjalamálinu svokallaða hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Dómarinn í málinu, Aileen M. Cannon, ákvað upprunalega að réttarhöldin ættu að hefjast í maí en nú segir hún það ekki í boði, því hún þurfi að taka svo magar ákvarðanir sem varða flókna anga þessa máls og framkvæmd réttarhaldanna. 8. maí 2024 14:14
Vill herja á Trump vegna þungunarrofs Miklar deilur mynduðust á þingi Arizona í Bandaríkjunum í gær þegar Repúblikanar komu í veg fyrir umræðu um að fella úr gildi 160 ára gömul lög um bann við þungunarrofi sem voru nýverið endurvakin af hæstarétti ríkisins. „Skömm, Skömm!“ var kallað í þingsalnum þegar umræðan var stöðvuð. 11. apríl 2024 16:17