Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 5. maí 2024 13:17 Ásteitingarsteininn virðist vera hvort vopnahléð verði tímabundið eða ótímabundið. AP/Abir Sultan Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að, þó Ísraelsmenn séu tilbúnir til þess að gera hlé á átökunum til að Hamasliðar afhendi þá gísla sem enn eru í þeirra haldi, komi það ekki til greina að binda endanlegri enda á átökin.
Sendinefndir frá Katar, Egyptalandi og Bandaríkjunum funda nú með fulltrúum Hamas og freista þess að binda enda á átökin sem geisað hafa í sjö mánuði. Viðræðurnar virðast stranda á því hvort vopnahléð verði tímabundið eða ekki. Hamasliðar krefjast ótímabundins vopnahlés en Netanjahú segir Ísrael ekki geta gengist við því. „Við getum ekki samþykkt ástand þar sem herdeildir Hamas klifra neðan úr byrgjunum sínum, ná aftur valdi á Gasa, byggja upp hernaðarinnviði sína og ógna ísraelskum borgurum í nærliggjandi samfélögum, borgum suðursins og öllum landshlutum á nýjan leik,“ segir Netanjahú. „Ísrael mun ekki gangast við kröfum Hamas,“ bætir hann við. Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins felur sá samningur sem rætt er um í Kaíró í sér fjörutíu daga hlé á átökum til að hægt sé að sleppa gíslum og að Ísraelsmenn láti lausa Palestínumenn í ísraelskum fangelsum. „Að gangast við kröfum Hamasliða yrði hræðilegur ósigur fyrir Ísrael. Það yrði stórsigur fyrir Hamas, Íran og allt hið illa,“ segir Netanjahú.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Fleiri fréttir Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Sjá meira