Yndisleg stund sem allir sem eigi fjölskyldur hljóti að skilja Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 9. mars 2024 07:32 Tár runnu niður kinnar þegar fjölskyldur sameinðustu á ný. Basem litli var prúðbúinn í tilefni dagsins og beið með blóm. Vísir/Vilhelm Rúmlega sjötíu manna hópur frá Gasa lenti á Keflavíkurflugvelli í dag og hitti loks ástvini og fjölskyldur á Íslandi. Aðstandendur mættu með blóm og í sínu fínasta pússi til að taka á móti fólkinu sínu en þeir þurftu þó að bíða í dágóðan tíma. Baráttufeðgin segja allt fjölskyldufólk á Íslandi hljóta að sjá fegurðina í sameiningu fjölskyldna eftir margra ára aðskilnað.
Djúpstæður léttir og gleði skein úr augum fólks þegar palestínskar fjölskyldur komu saman eftir langan aðskilnað. Fólkið féll í faðma, og gaf rembingskossa og margir hverjir voru með gleðitár á hvarmi. Palestínumennirnir eru allir með dvalarleyfi á Íslandi en íslensk yfirvöld náðu á dögunum að bjarga þeim frá Gasa. Hópurinn lenti á Keflavíkurflugvelli á öðrum tímanum í dag. Þar voru tugir aðstandenda sem ætluðu að taka á móti fólkinu en allt kom fyrir ekki því palestínski hópurinn fór beinustu leið frá vellinum, í rútur og að húsnæði á vegum Rauða krossins og Vinnumálastofnunar. Bros skein úr hverju andliti.Vísir/Vilhelm Aðstandendurnir fylgdu þangað í kjölfarið og kom stóri hópurinn frá Gasa klukkan hálf sex til Reykjavíkur. Fréttastofa tók nokkra aðstandendur tali, rétt áður en endurfundirnir langþráðu urðu að veruleika. Abdulla hafði í marga mánuði þrýst á að fjölskyldunni yrði bjargað. Basem litli var prúðbúinn í tilefni dagsins, Al Assar systurnar voru fegnar að fjölskyldumeðlimir séu komnir í skjól og þakklæti var ofarlega í huga Albajúk fjölskyldunnar eins og sjá má í klippunni að neðan. Baráttumæðginin Askur Hrafn Hannesson og Karen Kjartansdóttir eru á meðal þeirra sem barist hafa fyrir sameiningu fjölskyldnanna. „Þetta er ein magnaðasta tilfinning sem ég hef upplifað á ævi minni. Að sjá fólk sameinast eftir fimm ára aðskilnað og komast af hættulegasta stað í heimi,“ segir Askur. Hann hefur verið að passa tvo unga drengi síðustu vikur og mánuði. Baráttumæðginin Askur og Karen.Vísir/Sigurjón „Að sjá föður þess yngri og faðma hann. Það eru engin orð sem geta lýst því.“ Karen móðir hans segir Ask líklega hafa grátið einna mest á vettvangi. „Það er ekki hægt að lýsa því hvað þetta var fallegt og yndislegt. Það hljóta líka allir sem eiga fjölskyldur að skilja, þegar maður elskar fjölskyldur sínar að sjá fjölskyldur sameinast. Við maðurinn minn áttum brúðkaupsafmæli í dag og vorum einmitt að tala um að þetta væri eins viðeigandi fögnuður og hugsast getur. Það getur ekkert toppað þetta,“ segir Karen. Askur segir lífið hafa snúist um þessa baráttu fyrir fjölskyldusameiningum síðustu mánuði. Allt er bjart fyrir okkur tveim... því ég er kominn heim!Vísir/Vilhelm „Þetta er risaáfangi í herferð sem hófst í desember síðastliðinn og hefur staðið í ströngu síðan þá. Það er risa grasrótarhópur að baki öllum þessum aðgerðum, í tjöldum og hvaðeina.“ Karen segir að fátt annað hafi komist að í umræðum margra á Íslandi undanfarið. En þetta skipti miklu máli og ekki hægt að komast út úr þessu fyrr en ástandinu líkur. Vinnunni sé ekki lokið. Gleðin var mikil.Vísir/Vilhelm „Nei, þetta er svo sannarlega risa og gleðilegur áfangi en það eru ekki allar fjölskyldurnar komnar heim. Við eigum eftir að ljúka því verki. Svo er lykilatriði að veita palestínsku flóttafólki sem er komið til landsins alþjóðlega vernd og líka bjóða þau velkomin í samfélagið og berjast gegn vaxtandi útlendingaandúð.“ Karen tekur undir þetta. „Það er rosalega mikilvægt fyrir okkur öll. Þetta þarf að takast vel, við þurfum að bjóða þau velkomin því þetta eru fjölskyldur eins og við hér á Íslandi og þau þurfa að verða hluti af okkar samfélagi. Það gerum við með því að taka vel á móti þeim.“
Flóttafólk á Íslandi Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Reykjavík Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Fleiri fréttir Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Sjá meira