Æðstu ráðamenn Ísrael ítreka áköll um brottflutning Palestínumanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. janúar 2024 07:13 Ben Gvir var vígreifur á ráðstefnunni og steig dans með félögum sínum. epa/Abir Sultan Ráðherrar í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, voru meðal þúsunda gesta á ráðstefnu sem fram fór í Jerúsalem í gær, þar sem fjallað var um nauðsyn þess að „endurnema“ Gasa og mögulegar leiðir til þess.
Viðstaddir voru meðal annarra Itamar Ben Gvir, ráðherra þjóðaröryggismála, og fjármálaráðherrann Bezalel Smotrich, þingmenn, rabbínar, aðgerðasinnar úr hópi landnema og fjölskyldur hermanna á Gasa. Dagblaðið Haaretz hefur eftir Ben Gvir að ef Ísraelsmenn vilji ekki sjá árásir Hamas 7. október síðastliðinn endurtaka sig verði þeir að „snúa heim og stjórna Gasa“. Finna þyrfti leiðir til að fá Palestínumenn til að yfirgefa svæðið sjálfviljuga og dæma hryðjuverkamenn til dauða. „Ég biðla til þín, Netanyahu forsætisráðherra; nú er tíminn fyrir hugdjarfar ákvarðanir.“ Flokkssystkini forsætisráðherrans á ráðstefnunni tóku undir áköll Ben Gvir og haft var eftir fjarskiptamálaráðherranum Shlomo Karhi að „sjálfviljugir“ þýddi stundum að skapa þyrfti ákveðið ástand þar til menn gæfu eftir. Ferðamálaráðherrann Haim Katz sagði að eftir mörg ár af afskiptaleysi gagnvart Gasa hefðu Ísraelsmenn nú loks tækifæri til þess að endurbyggja og stækka yfirráðasvæði sitt. Þetta væri lokatækifærið.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fleiri fréttir Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Sjá meira