Myndaveisla: Dagur B fékk viðstadda til að sperra upp eyrun Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 19. janúar 2024 13:02 Fjölmennt var í einni stærstu vísindaferð landsins í Grósku á dögunum. Um sjö hundruð háskólanemar mættu í eina stærstu vísindaferð landsins til að kynna sér frumkvöðlakeppnina Gulleggið í Grósku á dögunum. KLAK - Icelandic Startups stóð fyrir viðburðinum sem hefur fest sig í sessi meðal eftirsóttustu viðburða hjá nemendum háskóla landsins.
Vísindaferðin hófst með kynningu á frumkvöðlakeppninni Gullegginu í hátíðarsal Grósku þar sem Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups fór yfir framkvæmd keppninar og praktísk atriði varðandi þátttöku. Dagur B. Eggertsson fráfarandi borgarstjóri hélt tölu og fékk viðstadda til að sperra upp eyrun þegar hann hvatti háskólanema að vera óhrædda að láta drauma sína verða að veruleika og taka stökkið inn í íslenskt sprotasamfélag með þátttöku í Gullegginu en Reykjavíkurborg hefur verið bakhjarl keppninnar til fjölda ára. Alma Dóra Ríkarðsdóttir, frumkvöðull og meðstofnandi sprotafyrirtækisins HEIMA fór svo yfir ferli HEIMA sem var lítið annað en hugmynd á servíettu þegar hún hlaut Gulleggið árið 2020 en er nú fullbúið smáforrit með tugþúsundir notenda. Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK Dagur B. Eggertsson fráfarandi Borgarstjóri og Alma Dóra Ríkarðsdóttir meðstofnandi HEIMAEygló Gísladóttir „Við erum gríðarlega stolt af vísindaferðum okkar hjá KLAK - Icelandic Startups en við höfum núna í nokkur ár haldið risa vísindaferðir til að markaðssetja Gulleggið sem hafa fest sig í sessi meðal eftirsóttustu viðburða hjá nemendum háskóla landsins. Nú tekur við sjálf hugmyndakeppnin. Við tökum við skráningum í Masterclass Gulleggsins til aðfaranótt laugardagsins, eða til klukkan 23:59 þann 19. janúar en þátttaka í Masterclass er nauðsynleg til að geta sent inn hugmynd í keppnina. Markmiðið með Masterclass er að þróa hugmynd og búa til kynningu sem gerir þér kleift að taka næsta skref. Tíu teymi eru valin inn í lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í hátíðarsal Grósku þann 9. febrúar,“ segir Magnús Daði Eyjólfsson, verkefnastjóri Gulleggsins. Í lok kynningarinnar tróðu tónlistardúettinn, Sprite Zero Klan og Háski, upp og trylltu lýðinn. Magnús Daði Eyjólfsson verkefnastjóri Gulleggsins og Jenna Björk Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá KLAK - Icelandic StartupsEygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Sprite Zero Klan 2Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir Eygló Gísladóttir
Háskólar Samkvæmislífið Reykjavík Nýsköpun Mest lesið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira