Sjáðu mörkin úr langþráðum Blikasigri og góðri heimsókn Akureyringa í Laugardalinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. september 2023 11:01 Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði gegn sínu gamla félagi. vísir/vilhelm Eftir fimm leiki í röð án sigurs vann Breiðablik Stjörnuna, 2-0, í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar kvenna í gær.
Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik kom Katrín Ásbjörnsdóttir Blikum yfir gegn sínum gömlu félögum þegar hún skoraði með skoti á lofti eftir hornspyrnu Öglu Maríu Albertsdóttur. Á 69. mínútu bætti Andrea Rut Bjarnadóttir öðru marki við. Hún fylgdi þá eftir eigin skoti sem Erin McLeod varði. Með sigrinum endurheimtu Blikar 2. sæti deildarinnar. Þeir eru með 37 stig, tveimur stigum meira en Stjörnukonur. Klippa: Breiðablik 2-0 Stjarnan Þróttur varð af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti þegar liðið beið lægri hlut fyrir Þór/KA á heimavelli, 0-2. Staðan var markalaus í hálfleik en á 48. mínútu kom Sandra María Jessen Þór/KA með góðu vinstri fótar skoti. Jakobína Hjörvarsdóttir jók muninn svo í 0-2 þegar tuttugu mínútur voru eftir. Þróttur er í 4. sæti deildarinnar með 34 stig en Þór/KA í því fimmta með 32 stig. Klippa: Þróttur 0-2 Þór/KA Íslandsmeistarar Vals unnu 3-1 sigur á FH á heimavelli. Amanda Andradóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 31. mínútu og kom Valskonum yfir. Tíu mínútum síðar jafnaði Snædís María Jörundsdóttir fyrir Stjörnukonur. Á 65. mínútu kom Arna Sif Ásgrímsdóttir Val aftur yfir þegar hún skallaði fyrirgjöf Ásdísar Karenar Halldórsdóttur í netið. Laura Frank skoraði svo þriðja mark Valskvenna með skalla í uppbótartíma. Klippa: Valur 3-1 FH Öll mörkin úr leikjum gærdagsins í Bestu deild kvenna má sjá hér fyrir ofan.
Besta deild kvenna Breiðablik Stjarnan Þróttur Reykjavík Þór Akureyri KA Valur FH Mest lesið Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Íslenski boltinn Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Enski boltinn Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Golf Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Formúla 1 Yfirlýsing íranska landsliðsins: „Enginn getur bannað okkur að fara á HM“ Fótbolti Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúla 1 Guardiola hreinskilinn: „Ef við töpum stigum er þetta búið“ Enski boltinn Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Enski boltinn Fleiri fréttir Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Sjá meira