Annar stærsti júlí frá upphafi mælinga Eiður Þór Árnason skrifar 10. ágúst 2023 16:14 Fjöldi ferðamanna á Íslandi nálgast fyrra metár. Vísir/Vilhelm Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll voru um 275 þúsund í júlí samkvæmt nýrri talningu Ferðamálastofu. Það er annar stærsti júlímánuður frá því mælingar hófust en tvær af hverjum fimm brottförum voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna.
Alls hafa um 1,2 milljónir erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll frá áramótum sem nemur 41,9% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra. Fjöldinn það sem af er ári, frá janúar út júlí 2023 er um 94% af brottförum á sama tímabili metárið 2018. Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu. Brottfarir Íslendinga voru um 70.600 í júlí eða 8,2% fleiri en þær mældust í sama mánuði í fyrra. Frá áramótum hafa brottfarir Íslendinga mælst um 364 þúsund talsins eða 93,5% af því sem þær mældust á sama tímabili árið 2018, sem var metár í ferðum Íslendinga. Þjóðverjar fylgja langt á eftir Líkt og fyrr segir voru Bandaríkjamenn stærsta þjóðerni ferðamanna í júlí og voru brottfarir þeirra tæplega 114 þúsund talsins, eða sem nemur 41,3% af heild. Bandaríkjamenn hafa verið stærsta þjóðernið í júlímánuði allt frá árinu 2011. Brottfarir Þjóðverja voru í öðru sæti í júlí síðastliðnum, 22 þúsund talsins eða 8,0% af heild. Brottfarir Pólverja voru í þriðja sæti eða 7,4% af heild og Frakka í því fjórða (4,9%). Þar á eftir fylgdu Bretar (4,0%), Ítalir (3,1%), Danir (2,8%), Kanadamenn (2,7%), Spánverjar (2,2%) og Hollendingar (1,8%).
Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Sjá meira