Ferðamennska á Íslandi

Ferðamennska á Íslandi

Fréttir af ýmsum málum tengdum ferðamennsku á Íslandi.

Fréttamynd

Drógu dauða lang­reyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“

Farþegum og leiðsögumönnum um borð í hvalaskoðunarskipi Eldingar varð hverft við þegar við þeim blasti dauð langreyður í eftirdragi hvalveiðiskips í Faxaflóa í gær. Leiðsögumaður segi suma farþega hafa orðið skelfingu lostna. Framkvæmdastjóri Eldingar segir að lifandi hvalir séu einnig auðlind og hvalaskoðun líka vertíð.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lifandi hvalir skapa líka verð­mæti

Í umræðunni um hvali er oft talað eins og verðmætin verði fyrst til þegar dýrin eru veidd. En lifandi hvalir skapa líka verðmæti. Í kringum þá hefur byggst upp öflug atvinnugrein sem skapar störf, gjaldeyri og líf við hafnir víða um land.

Skoðun
Fréttamynd

Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upp­tæka

Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri.

Innlent
Fréttamynd

Kerlingar­fjöll: Ævin­týri á há­lendi Ís­lands

Í sumar er tilvalið að gera sér ferð til fjalla og láta sér líða vel í faðmi náttúrunnar. Hálendið er nær en þú heldur og lítið mál að skjótast þangað í dagsferð á sumrin, hvort sem þú vilt keyra á eigin vegum eða skella þér í skipulagða ferð.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Eigi von á tæp­lega 200 þúsund gestum

Íbúar Ísafjarðarbæjar eiga von á tveimur skemmtiferðaskipum í dag með allt að 8000 farþegum. Annað skipanna er það stærsta sem hefur komið til hafnar á Ísafirði en skipið kom þangað í sína fyrstu heimsókn árið 2023. Gylfi Ólafsson, nýkjörinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir fjölda bókana vera að taka við sér eftir lækkun innviðagjalds. Bærinn eigi von á tæplega 200 þúsund ferðamönnum í sumar. 

Innlent
Fréttamynd

Bregðast við skammarbréfi Þor­gerðar og fé­laga

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heitir því að ráðast í aðgerðir eftir að ellefu Schengen-ríki, þar á meðal Ísland, kröfðust þess að Evrópusambandsríki hertu á útgáfu vegabréfsáritana til rússneskra ríkisborgara. Þar gagnrýndu þau óbeint Frakka, Ítali og Spánverja sem enn taka á móti hundruðum þúsunda rússneskra ferðamanna á ári.

Erlent
Fréttamynd

For­gangs­röðun fjár úti í skurði

Síðustu daga hefur staðið yfir umræða á Alþingi um samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040. Eðli málsins samkvæmt hefur annað mál á dagskrá þingsins um hið svokallaða innviðafélag samtvinnast þeirri umræðu allverulega og deila má um hvort þeirra hefði átt að ræða á undan.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja banna rúss­neska túr­ista

Ísland er sagt vera meðal þeirra ellefu Evrópuríkja sem krefjast þess að Evrópusambandsríki hætti að veita rússneskum ferðamönnum vegabréfsáritanir. Ráðherrar landanna munu hafa sent framkvæmdastjórn ESB bréf þar sem þeir segji það óboðlegt að rússneskir ferðamenn fái að sóla sig á evrópskum ströndum á meðan sprengjur dynja á úkraínskum borgum.

Erlent