Týndist fyrir átta árum en fannst á lífi Máni Snær Þorláksson skrifar 3. júlí 2023 22:28 Farias fannst um helgina en hann týndist fyrir rúmum átta árum síðan. Texas Center for the Missing Rudy Farias týndist þegar hann var átján ára gamall, fyrir rúmum átta árum síðan. Hann fannst á lífi á laugardaginn í kirkju sem staðsett er í um tólf kílómetra fjarlægð frá heimili hans í borginni Houston í Texas, Bandaríkjunum.
Samkvæmt frétt NBC um málið er Farias nú staddur á sjúkrahúsi en ekki er vitað hvers vegna. Þá er ennþá óljóst hvar hann hefur verið síðastliðin ár eða hvers vegna hann hvarf. „Það er kraftaverk að hann fannst en nú er spurningin, hvað gerðist? Hvar hefur hann verið? Hvers vegna? Hvað hefur hann verið að gera þessi síðustu átta ár?“ er haft eftir Tim Miller, rannsakanda hjá Texas EquuSearch, félagi sem hjálpaði til við leitina að Farias. Áður en Farias fannst hafði ekki sést til hans síðan í mars árið 2015. Þá hafði hann verið úti að ganga með hundana sína tvo í nágrenni við heimilið sitt. Báðir hundarnir skiluðu sér heim, án ólanna sinna, en Farias fannst ekki. Fjölskylda drengsins sagði á sínum tíma að Farias hafi glímt við þunglyndi eftir að hann missti eldri bróður sinn í mótorhjólaslysi sem hann var sjálfur vitni að. „Hann horfði á besta vin sinn deyja beint fyrir framan sig,“ sagði Brenda Paradise, einkaspæjari sem ráðinn var af fjölskyldu Farias eftir að hann hvarf.
Bandaríkin Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira