Íslensk kona alvarlega særð eftir stunguárás í Lundi Atli Ísleifsson skrifar 22. maí 2023 13:32 Dómkirkjan í Lundi er helsta kennileiti þessa háskólabæjar í suðurhluta Svíþjóðar. Getty Íslensk kona um fimmtugt var flutt alvarlega særð á sjúkrahús eftir að hafa verið stungin með hníf á heimili í Lundi í suðurhluta Svíþjóðar á laugardag. Maður sem tengist konunni var handtekinn á hverfishátíð í grenndinni skömmu eftir árásina en sleppt í gærkvöldi. Hann er ekki lengur grunaður um árásina.
Joakim Nyberg hjá sænsku lögreglunni staðfestir í samtali við fréttastofu að konan sé íslensk og um fimmtug að aldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu er konan á 49. aldursári. Í frétt SVT kemur fram að lögregla hafi fengið tilkynningu um árásina um klukkan 15:20 að staðartíma á laugardag. Lögregla hafi þá komið að konunni sem hafi verið alvarlega særð og mikið hafi blætt úr henni. Haft er eftir sjónarvottum að hávær óp hafi heyrst frá staðnum áður en lögreglu og sjúkralið bar að garði. Fram kemur að 45 ára karlmaður hafi verið handtekinn á hverfishátíð í hverfinu Östra Torn skömmu eftir árásina og að hann hafi þekkt konuna. „Ég get ekki greint nánar um tengslin á milli þeirra,“ segir Rickard Lundqvist, talsmaður lögreglu, í samtali við SVT. Maðurinn neitar sök í málinu en hann er grunaður um tilraun til manndráps. Manninum sleppt síðdegis í gær Haft eftir saksóknaranum Josefin Sävlund að eftir forrannsókn hafi verið ákveðið að fara ekki fram á gæsluvarðhald yfir manninum og var honum sleppt síðdegis í gær. Segir Sävlund að við rannsókn hafi komið fram upplýsingar sem leiddu til að ekki þótti rétt að fara fram á gæsluvarðhald. Maðurinn sé þó enn grunaður um brot sem skilgreint er sem tilraun til manndráps. Enginn annar er sem stendur grunaður um að tengjast málinu, að því er segir í frétt SVT. Uppfært klukkan 15:40 Fram kemur í uppfærðri frétt SVT að karlmaðurinn hafi ekki lengur stöðu grunaðs í málinu.
Svíþjóð Íslendingar erlendis Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira