Áverkar eftir skósóla Magnúsar á þeim látna Bjarki Sigurðsson skrifar 30. mars 2023 12:22 Magnús Aron Magnússon í dómsal í gær. Vísir/Vilhelm Mynstur var á áverkum á hægri hlið ennis Gylfa Bergmann Heimissonar sem samsvara skósóla Magnúsar Arons Magnússonar sem ákærður er fyrir að hafa myrt Gylfa. Höggin sem ollu áverkunum komu ofan frá.
Í þessari frétt verður farið yfir þá áverka sem Gylfi hlaut og því rétt að vara við þeim lýsingum sem fylgja. Aðalmeðferð í máli saksóknara gegn Magnúsi Aroni Magnússyni heldur áfram í dag. Magnús er ákærður fyrir að hafa veist að Gylfa Bergmann Heimissyni með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi lést. Fyrir dómi í gær lýsti Magnús því hvernig atburðarásin hafi verið umrætt kvöld fyrir utan heimili þeirra beggja í Barðavogi, en þeir bjuggu í sama húsi en á sitthvorri hæðinni. Þá sagðist hann ekki hafa gert atlögu að Gylfa á meðan hann lá liggjandi fyrir utan húsið. Nágrannar þeirra sem báru vitni lýstu því þó að Magnús hafi virst traðka á efri hluta líkama Gylfa á meðan hann lá hreyfingarlaus á jörðinni. Bæði íslenskur réttarlæknir sem starfar í Danmörku og réttarlæknir hér á landi gáfu vitnisburð sinn í dag. Sú sem býr í Danmörku var fyrst en sá hún meðal annars um að meta áverka á Magnúsi en áverkarnir voru myndaðir og ljósmyndir sendar út. „Það er áverki á utanverðum ökklanum, hægra megin. Ferskur áverki sem ég kalla skrámu. Það voru líka á sitthvorum úlniðnum, húðblæðing og litabreytingar. Þessar breytingar koma vegna skjóts kraft og gætu verið eftir til dæmis handjárn,“ sagði læknirinn. Benti hún á að á ljósmyndunum sem hún fékk sendar voru blóðkámur á svæðum á líkama Magnúsar svo þar hafi hún ekki geta ákvarðað hvort áverkar séu þar undir. Hinn réttarlæknirinn sem búsettur er hér á landi og skoðaði Magnús einnig hafði sömu sögu að segja. Þar sköruðu sig þó úr áverkar á vinstri baugfingri. Áverkarnir samsvara þeim sem veitt hefur öðrum hnefahögg og tönn móttakans fer í fingurinn. Læknirinn í Danmörku hafði einmitt sagt að hún hefði viljað skoða hnúa Magnúsar betur. Á Gylfa fundust hins vegar talsververðir áverkar. Læknirinn í Danmörku sagði að aðallega hafi þeir verið á höfði, þá sérstaklega í andliti og á efri hluta höfuðsins, hálsi og á herðum. „Það eru einnig dreifðir áverkar á búknum og útlimunum, griplimum og ganglimum. Á griplimum eru þeir staðsettir á bakhliðinni en engir á lófahliðinni. Þessir áverkar í andliti og á höfði og hálsi eru talsverðir, miklar blæðingar, skurðir, skrámur, blæðingar og mar í andlitsvöðvum, umfangsmikið brot í andliti, það má nánast segja að andlitið hafi verið þrykkt inn,“ sagði læknirinn í Danmörku. Þá voru einnig umtalsverðir áverkar á yfirborði hálsins og í djúpvefjum, meðal annars brot á brjóskhluta og barka. Fyrir utan þá áverka sem sáust á yfirborðinu mátti finna blæðingar á yfirborði heilans. Á hægri hlið ennis Gylfa voru munstraðir áverkar. Tóku áverkarnir útlit sitt af yfirborði þess hlutar sem olli áverkanum. Voru þeir samsvarandi skósólanum á þeim skóm sem Magnús klæddist þetta kvöld og til að kalla þá fram þurfti beinan kraft beint á andlitið. Læknirinn sagði þá passa við það að Gylfi hafi verið liggjandi í grasinu á bakinu og þá hafi komið kraftur ofan frá og niður. Var sú lýsing í samræmi við lýsingar nágranna þeirra sem urðu vitni að atvikinu en ekki í samræmi við lýsingar Magnúsar. Einnig mátti finna áverka á griplimum Gylfa sem samsvara varnaráverkum. Voru þeir á bakhlið limanna en ekki mátti finna mörg merki þar um að Gylfi hafi slegið mikið frá sér. Bentu þeir til þess að hann hafi ekki verið mjög aggresívur. Dánarorsök Gylfa voru höfuðáverkar og áverkar á hálsi sem ollu því að öndun hans var torvelduð. Voru báðir þættir samverkandi og ekki hægt að staðfesta hvort annað hvort hafi vegið þyngra. Gylfi var nokkuð ölvaður þegar hann lést en það gæti hafa haft áhrif á dómgreind hans, samhæfni og viðbrögð. Hann var ekki ofurölvi eða hjálparlaus en áfengismagnið var ekki það sem dró hann til dauða og hafði ekki áhrif á dánarorsökina. Hinn læknirinn sagði mest það sama og sú sem býr í Danmörku. Hann sagði þurfa mikinn kraft til að framkalla þá áverka sem fundust á Gylfa. „Ef skalinn er sá kraftur sem felst í þeim stimpingum sem eru á manna milli er þetta klárlega a efsta stigi og með því ofsamesta sem sést í árásum þar sem ekki eru notuð áhöld,“ sagði læknirinn. Sagði hann Gylfa einnig hafa haft útbreidda áverka á yfirborðinu, marbletti á hálsinum og mjúkvöðvablæðingar. Skjaldbrjósk og tungubein hafi verið brotin og djúpar blæðingar voru á aftanverðum vöðvum hálsins. Efst á hryggnum var mikið mar sem lá djúpt ofan í efsta hluta brjóstbaksins. Þá voru ýmsir minniháttar marblettir og smásár á útlimum.
Manndráp í Barðavogi Reykjavík Dómsmál Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Innlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Fleiri fréttir Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Sjá meira