Frans páfi lagður inn á sjúkrahús Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 30. mars 2023 07:45 Páfi kom síðast opinberlega fram í gær á Péturstorginu í Róm og þá sást greinilega að hann var þjáður. Skömmu síðar var hann lagður inn á sjúkrahús. AP Photo/Alessandra Tarantino Frans páfi hefur verið lagður inn á sjúkrahús í Róm vegna öndunarfærasýkingar. Páfinn, sem er orðinn 86 ára gamall er þó ekki með Covid að sögn Vatikansins.
Í tilkynningu segir að hann verði á spítala í nokkra daga í viðeigandi meðferð. Hluti annars lunga páfa var fjarlægður þegar hann var ungur maður sökum sýkingar. Veikindin koma upp á versta tíma fyrir páfa en páskarnir eru einn annasamasti tími ársins fyrir leiðtoga kaþólsku kirkjunnar. Til stendur að páfi haldi til að mynda messu á pálmasunnudag um næstu helgi en óvíst er hvort af því geti orðið. Þá er einnig búist við honum í opinbera heimsókn til Ungverjalands í lok aprílmánaðar. Frans páfi hefur notast við hjólastól síðustu mánuði vegna verkja í hné og hann gekkst einnig undir aðgerð á ristli árið 2021 og í janúar var greint frá því að vandamálið hafi tekið sig upp að nýju. Hann hefur þrátt fyrir veikindin verið á faraldsfæti og heimsótti til að mynda Lýðveldið Kongó og Suður-Súdan. Í janúar jarðsetti Frans einnig fyrirennara sinn Benedikt páfa, en hann var fyrsti páfinn í aldaraðið til að segja af sér sökum heilsubrests en yfirleitt hafa páfar Vatikansins látist í embætti. Frans hefur nokkrum sinnum minnst á að hann kunni að gera slíkt hið sama.
Páfagarður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira