Fann föður sinn og nauðgara móður sinnar með DNA prófi Samúel Karl Ólason skrifar 9. mars 2023 20:47 Forsvarsmenn þjónustumiðstöðvarinnar hétu því þegar fjölfötluð kona sem gat ekki tjáð sig varð ólétt að kalla til lögreglu og rannsaka málið. Það gerðu þeir ekki en lögðu þess í stað til að konan yrði sett á getnaðarvarnir eftir fæðingu. AP/Lauren Petracca Bandarísk kona notaði DNA-próf og vinsælan erfðafræðigagnagrunn til að finna föður sinn og í senn manninn sem nauðgaði fjölfatlaðri móður hennar. Maðurinn vann á þjónustumiðstöð sem konan var vistuð á.
Magdalena Cruz fæddist árið 1986 en þá var móðir hennar vistuð á þjónustumiðstöð fyrir fatlaða í Rochester í New York. Hún var þrítug en með þroska tveggja ára barns en þar að auki gat hún ekki tjáð sig, notaði bleyjur og þurfti stanslausa umönnun þegar í ljós kom að hún var ólétt. Forsvarsmenn miðstöðvarinnar sögðu fjölskyldu hennar að líklegast væri einhver maður sem vistaður væri á stofnuninni sekur um að hafa nauðgað konunni og hétu því að málið yrði rannsakað af bæði lögreglu og þeim sjálfum. Notaði Ancestry.com Nærri því fjórum áratugum síðar hefur Cruz sýnt fram á hver faðir hennar er en það gerði hún með því að taka DNA-próf og senda niðurstöðurnar í vinsælan gagnagrunn vestanhafs sem fólk getur notað til að fá upplýsingar um uppruna sinn. Maðurinn sem um ræðir var ekki vistaður á stofnuninni, heldur vann hann þar. Ekki er hægt að ákæra föður hennar, þar sem brot hans er fyrnt samkvæmt lögum, en Cruz hefur þess í stað höfðað mál gegn opinberu stofnuninni sem rekur umrædda þjónustumiðstöð og aðrar í New York ríki. Það gerði hún á grundvelli laga sem samþykkt voru í fyrra en þau snúa að því að hægt sé að höfða mál vegna gamalla kynferðisbrota. Sár fundust á móðurinni Lögmaður Cruz sagði blaðamanni AP að hún hefði byrjað rannsókn sína fyrir um fjórum árum. Hún byrjaði á því að verða sér út um gögn varðandi umönnun móður hennar. Þar var meðal annars skrifað um meiðsli sem hún hlaut fyrir og eftir að hún varð ólétt. Bitfar fannst á brjósti hennar, marblettir á öxlum og stórt sár á baki. „Líkar við litaða menn, klæðir sig úr fötunum, öskrar stundum, hoppar og borðar mjög hratt,“ skrifaði einn af starfsmönnum þjónustumiðstöðvarinnar um móður Cruz en hún telur að sá sé faðir hennar. Töluðu aldrei við lögreglu AP fréttaveitan segir Cruz hafa komist að því að forsvarsmenn stofnunarinnar kölluðu lögreglu aldrei til og ræddu þar að auki aldrei við starfsmenn um málið á sínum tíma. Í gögnunum kom þar að auki fram að í stað þess að rannsaka málið lögðu forsvarsmenn þjónustumiðstöðvarinnar til að konan yrði sett á getnaðarvarnir. Ekki liggur fyrir hvort það hafi verið gert en lögmenn Cruz segja að slíkt hefði engum tilgangi þjónað nema til að hylma yfir áframhaldandi brot gegn konunni. Þeir segja enn fremur að líklega verði aldrei hægt að vita hve oft konunni hafi verið nauðgað og hvort brotið hafi verið á öðru vistfólki, vegna þess að forsvarsmenn þjónustumiðstöðvarinnar hafi falið brotin. Fann föður sinn á netinu Cruz fór í greiningu á Ancestry.com og fann í gegnum erfðamengi hennar að hún ætti skyldmenni í Virginíu, sem hefðu einnig farið í greiningu fyrir gagnagrunninn. Cruz fann fjölskylduna á netinu og fann þar myndir af stúlku sem hún taldi líkjast sér. Því næst komst hún að því að faðir þessarar stúlku hefði búið í Rochester, skammt frá þjónustumiðstöðinni, á þeim tíma þegar móðir hennar var nauðgað. Árið 2019 leitaði Cruz til lögreglunnar með þau gögn sem hún hafði safnað en rannsakendur staðfestu fljótt að maðurinn hefði unnið á þjónustumiðstöðinni á umræddum tíma. Svo langur tími væri hins vegar liðinn að ekki væri hægt að ákæra hann. Blaðamenn AP reyndu að hafa samband við hann, án árangurs. Í frétt AP segir að minnst tíu starfsmenn þjónustumiðstöðvarinnar á árunum 1976 til 1985 hafi reynst barnaníðingar og nauðgarar og þar á meðal væru yfirmenn, öryggisverðir og sjálfboðaliðar. Þá hafi vistfólk dáið við dularfullar kringumstæður.
Bandaríkin Mest lesið Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Innlent Fleiri fréttir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent