Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Lovísa Arnardóttir skrifar 1. september 2026 07:52 Gríðarleg sorg ríkir í Nepal. Vísir/EPA Manntjón í Nepal vegna gríðarlegra flóða við landamærin að Tíbet er komið í 987 samkvæmt almannavarnayfirvöldum landsins.
Hamfarirnar áttu sér stað þann 26. ágúst en þá varð skyndiflóð og skriður í kjölfarið. Um 3.916 manns er enn saknað, þar af meira en 600 starfsmanna sem talið er að séu fastir í umfangsmiklu neti gangna við vatnsaflsvirkjanir meðfram Trishuli-ánni. Í umfjöllun BBC segir að verkfræðingar hafi síðustu daga dælt lofti inn í göngin. Björgunarsveit hafi tekist að komast inn í ein göngin en þurft að snúa við eftir að enginn fannst þar. Nepal reiðir sig mjög á vatnsafl og hefur um árabil unnið að uppbyggingu virkjana við ár landsins, sem renna um fjalllendi. Yfirvöld segja að að minnsta kosti 11 virkjanaverkefni, ýmist fullbyggð eða í byggingu, hafi skemmst í flóðunum. Enn er verið að leita fólks sem lendi undir flóðum og skriðum.Vísir/EPA Alþjóðlegt teymi leiðir björgunaraðgerðirnar en í því eru kínverskir og nepalskir hermenn. Sérfræðingar frá Indlandi, Kóreu og Ástralíu taka einnig þátt í aðgerðunum. Björgunaraðgerðirnar hefðu verið „efldar“, sagði nepalski leiðtoginn Shah í Facebook-færslu seint í gær og benti á að flóðin væru „ekki venjulegur“ atburður. „Þetta atvik sýnir að áhættan sem við stöndum frammi fyrir á Himalajasvæðinu eykst samhliða loftslagsbreytingum. Það er kominn tími til að við vekjum af meiri krafti athygli alþjóðasamfélagsins á þeim hamförum sem við verðum fyrir vegna loftslagsbreytinga,“ skrifaði Shah í færslunni. Í frétt BBC segir að aðeins hafi tekist að bera kennsl á um fjögur prósent þeirra sem hafa fundist. Opinber tala látinna Tíbetmegin er 16 og 546 er saknað, samkvæmt kínverskum ríkisfjölmiðlum. Í frétt BBC segir að myndefni af flóðunum hafi verið undir mikilli ritskoðun í Kína. Kínversk yfirvöld hafi beitt fólk „stjórnsýsluviðurlögum“ sem geta falið í sér áminningar, sektir eða skammvinnar handtökur vegna vangaveltna á netinu um að mannfallið sé mun meira en opinberar tölur gefa til kynna.
Nepal Tíbet Kína Tengdar fréttir Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Ýmis líkindi eru á milli aðstæðna sem virðast hafa valdið mannskæðu skyndiflóði í Nepal og Tíbet og á Íslandi þó að umhverfið sé gerólíkt. Íslenskur jarðfræðingur segir að stórar flóðbygjur geti komið úr jökullónum ef skriður falla í þau. 29. ágúst 2026 07:00 Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Að minnsta kosti 359 eru dánir og rúmlega níu hundruð er saknað eftir skyndiflóð og skriður í Nepal í gær. Svipað ástand er í Tíbet þar sem hundraða er enn saknað. Að minnsta kosti sjö hundruð erlendir ferðamenn eru meðal þeirra sem er saknað. 27. ágúst 2026 14:40 Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Yfir 1.500 er saknað eftir að jökulhrun olli skyndiflóði á landamærum Nepal og Tíbet. Svæðið er vinsælt meðal göngufólks og pílagríma og meirihluti þeirra sem saknað er eru ferðamenn. 27. ágúst 2026 07:23 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira
Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Ýmis líkindi eru á milli aðstæðna sem virðast hafa valdið mannskæðu skyndiflóði í Nepal og Tíbet og á Íslandi þó að umhverfið sé gerólíkt. Íslenskur jarðfræðingur segir að stórar flóðbygjur geti komið úr jökullónum ef skriður falla í þau. 29. ágúst 2026 07:00
Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Að minnsta kosti 359 eru dánir og rúmlega níu hundruð er saknað eftir skyndiflóð og skriður í Nepal í gær. Svipað ástand er í Tíbet þar sem hundraða er enn saknað. Að minnsta kosti sjö hundruð erlendir ferðamenn eru meðal þeirra sem er saknað. 27. ágúst 2026 14:40
Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Yfir 1.500 er saknað eftir að jökulhrun olli skyndiflóði á landamærum Nepal og Tíbet. Svæðið er vinsælt meðal göngufólks og pílagríma og meirihluti þeirra sem saknað er eru ferðamenn. 27. ágúst 2026 07:23