„Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Lovísa Arnardóttir skrifar 31. ágúst 2026 14:14 Stewart ræddi árásina í viðtali við 60 Minutes í Ástralíu. Myndin til hægri er tekin á vettvangi í sumar. Samsett Leah Stewart, 34 ára, kona frá Sydney sem lifði af hákarlaárás lýsti í sjónvarpsviðali því augnabliki þegar hún stóð augliti til auglitis við fjögurra metra langan hvíthákarl og kýldi hann þangað til hann hörfaði.
Rætt var í sumar við Ástu Hafþórsdóttur, förðunar- og gervahönnuð, sem varð vitni að atvikinu en hún var þá stödd í Sidney við tökur á nýjustu mynd Baltasars Kormáks, The Big Fix. Ásta sagðist þá enn vera að meðtaka atvikið og sagði mikla umræðu um öryggi við strendur hafa skapast í kjölfarið. Í fréttinni var þá aðeins tekið fram að konan sem ráðist var á hefði verið í lífshættu. Fjallað er um viðtalið á vef BBC. Konan, Leah Stewart, ræddi málið í sjónvarpsviðtali við 60 minutes í Ástralíu í gær. Í frétt þeirra kemur fram að hún hafi verið dregin undir yfirborð sjávar við Coogee-strönd í júní þegar hákarlinn beit í læri hennar og handleggi. Hún missti gríðarlega mikið blóð og meiðslin voru svo alvarleg að læknar þurftu að taka vinstri handlegg hennar af. Stewart sagði í viðtalinu að hún hefði verið staðráðin í að lifa dóttur sinnar vegna. „Í huganum var ég bara: … „Þú ætlar ekki að taka mig frá dóttur minni.“ Svo sneri ég mér við og byrjaði bara að kýla hann aftur og aftur og aftur – það var eins og að berjast við risaeðlu.“ Aðeins örfáum augnablikum áður en hún mætti hákarlinum hafði hún lokið reglulegu laugardagsmorgunsundi sínu og var á leið í land. „Ég heyrði stelpu fyrir aftan mig… hávært, skerandi öskur. Ég sneri mér við og sá gríðarlega stóran bakugga fyrir aftan hana. Hann var risastór,“ sagði hún í viðtalinu. „Ég horfði á stærðina á honum og áttaði mig á því að þetta var ekki höfrungur.“ Stewart sneri sér við og áttaði sig á því að hákarlinn var „rétt þarna ... og hann kom bara nær og nær og nær“. Hvíthákarl getur orðið allt að sex metra langur.Vísir/EPA „Andlit hákarlsins var „hryllilegt“, með „litlum, svörtum augum“ og „tennurnar og kjafturinn voru gríðarlega stór. Við horfðumst í augu,“ sagði Stewart og bætti við að á einum tímapunkti hefði hákarlinn verið aðeins um 30 sentímetra frá andliti hennar,“ sagði hún og að hún hafi samt sem áður náð að halda ró sinni og ákveðið að bregðast við. „Ég er rétthent, þannig að ég hugsaði: „Gerum vinstri krók,““ sagði hún. „Ég sveiflaði bara vinstri handleggnum og hann greip um framhandlegginn á mér og reif, reif húðina, vöðvana, allt… það var orðið stórt bil á milli framhandleggsins og handarinnar.“ Hákarlinn byrjaði að draga Stewart undir yfirborðið og greip um fót hennar. „Ég hugsaði: „Þetta er búið, svona dey ég.“ Svo hugsaði ég um August og hugsaði að hún myndi ekki eiga mömmu, hún myndi alast upp án mömmu,“ sagði hún og barðist við tárin. Neyddi sig til að berjast Hún sagðist ekki hafa getað hugsað sé að yfirgefa dóttur sína og hafi einhvern veginn neytt sig áfram til að berjast við hákarlinn. „Ég hlýt að hafa hitt hann virkilega vel einu sinni og þá sleppti hann mér. Þetta var það erfiðasta í heimi, en ég barðist þarna.“ Þrátt fyrir þessa skelfilegu reynslu sagðist Stewart í viðtalinu ekki vilja að hennar yrði minnst sem „stelpunnar sem var illa bitin á ströndinni“. „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið,“ sagði hún.
Ástralía Dýr Hafið Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira