Ásmundur Einar Daðason skipar þrjá nýja skrifstofustjóra Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 20. október 2022 18:17 Ásmundur Einar Daðason, ráðherra hefur skipað þrjá skrifstofustjóra, þau Önnu Tryggvadóttur (t.v.), Árna Jón Árnason og Þorstein Hjartarson. Stöð 2/Arnar Halldórsson, vefsíða stjórnarráðsins Þrír nýir skrifstofustjórar hafa verið skipaðir hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Ráðherra, Ásmundur Einar Daðason hefur skipað Önnu Tryggvadóttur, Árna Jón Árnason og Þorstein Hjartarson í embættin samkvæmt nýju skipulagi ráðuneytisins. Skipað er í embættin til fimm ára. Ekki var skipað í embætti skrifstofustjóra gæða- og eftirlitsmála vegna fækkunar skrifstofa hjá ráðuneytinu.
Anna er sögð hafa starfað innan hins opinbera allan sinn starfsferil. Greint er frá því á vef stjórnarráðsins að hún sé með B.A og Mag. Jur. próf í lögfræði og hafi meðal annars starfað innan Stjórnarráðs Íslands og sem staðgengill skrifstofustjóra. Ásamt því hafi hún verið yfirlögfræðingur hjá félagsmálaráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu. Einnig hafi hún starfað sem stundakennari hjá lagadeildum Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Anna er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra og innri þjónustu. Árni er skipaður í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu greiningar og fjármála. Hann er sagður hafa starfað sjálfstætt við fjármálaráðgjöf frá árinu 2016 og sé hann þá með M.Sc. gráðu í fjármálum með sérstaka áherslu á fjárfestingar frá University of Strathclyde í Glasgow. Hann hafi einnig verið einn meðeigenda Deloitte á árunum 2006 til 2016 og starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands. Þorsteinn er sagður hafa starfað sem framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts og síðar sem fræðslustjóri Árborgar frá 2011 til 2019. Einnig hafi hann starfað sem sviðsstjóri fjölskyldusviðs Árborgar frá árinu 2019 en hann sé með M.Ed. gráðu í stjórnun menntastofnana frá Kennaraháskóla Íslands. Þorsteinn hafi einnig íþróttakennarapróf frá Íþróttakennaraskóla Íslands en hann hefur nú verið skipaður í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumótunar og innleiðingar. Frekari upplýsingar um skipunina og nýju skrifstofustjórana má sjá á vef stjórnarráðsins.
Skóla - og menntamál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vistaskipti Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira