Enn bætist á vandræði Trumps Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2022 22:31 Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, stendur frammi fyrir margvíslegum rannsókn yfirvalda í Bandaríkjunum. AP/Mary Altaffer Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur kosningasjóð Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, til rannsóknar. Sérstaklega er verið að skoða hvernig peningum hefur verið safnað í „Save America“ sjóðinn og hvernig þeim hefur verið varið.
Sjóðurinn var stofnaðu í kjölfar þess að Trump tapaði kosningunum gegn Joe Biden árið 2020 og hafa fúlgur fjár safnast í hann á grunni lyga Trumps um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur. Sjá einnig: Trump safnar enn fúlgum fjár á grunni lyga Stefnur hafa verið gefnar út vegna rannsóknarinnar en í frétt New York Times segir að þær gefi til kynna að saksóknarar vilji læra meira um innri starfsemi sjóðsins. Stefnur hafa borist þeim sem að sjóðnum koma en fólk sem vann fyrir Trump í Hvíta húsinu og í tengslum við forsetaframboð hans hefur einnig verið stefnt. Þetta er til viðbótar við nokkrar aðrar rannsóknir sem snúa að viðleitni Trumps og bandamanna hans við að reyna að snúa niðurstöðum kosninganna. Sú viðleitni og lygar Trump-liða leiddu meðal annars til árásarinnar á þinghúsið 6. janúar í fyrra. Dómsmálaráðuneytið er þar að auki með Trump til rannsóknar vegna opinberra og leynilegra gagna sem hann tók með sér þegar hann flutti úr Hvíta húsinu og til Flórída. Sjá einnig: Fundu leynigögn um kjarnorkuvopn á heimili Trumps Lögmenn ráðuneytisins sendu í gær kröfugerð til dómara sem úrskurðaði nýverið í málinu að utanaðkomandi aðili skyldi fenginn til að fara yfir gögnin og í millitíðinni mætti ráðuneytið ekki nota þau til frekari rannsókna. Ákvörðunin var harðlega gagnrýnd og hafa ýmis spjót beinst að dómaranum, Aileen Cannon, sem var skipuð í embætti á síðustu dögum forsetatíðar Trumps. Trump og bandamenn hans í Repúblikanaflokknum kepptust við að skipa eins marga dómara í ævistörf eins og þeir gátu á kjörtímabili Trumps. Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings höfðu áður komið í veg fyrir að Barack Obama, fyrrverandi forseti, gæti skipað dómara. Margir þessara dómara voru ungir og reynslulitlir íhaldsmenn. Sjá einnig: „Þetta mun hafa afleiðingar 40 ár fram í tímann“ Saksóknarar vilja að Cannon skipti um skoðun og leyfi rannsakendum að halda áfram að skoða gögnin. Nauðsynlegt sé að tryggja að búið sé að finna öll leynileg gögn. Samkvæmt frétt Reuters vilja saksóknar að kröfugerð þeirra verði svarað fyrir 15. september, annars muni þeir áfrýja úrskurði hennar. Slík áfrýjun færi fyrir nefnd ellefu alríkisdómara en Trump skipaði sex af þeim í embætti. Í áðurnefndri kröfugerð sem send var í gær kemur fram að starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) og Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna hafi mögulega ekki fundið öll opinber og leynileg gögn í vörslu Trumps. Saksóknararnir sem sendu bréfið segja nauðsynlegt að rannsaka málið sem fyrst og tryggja að gögnin sem kunni að vera enn ófundin ógni ekki þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Deilurnar um skjölin urðu fyrst opinberar í febrúar eftir að starfsmenn sóttu skjöl til Mar-a-Lago, sveitarklúbbar Trumps í Flórída. Eftir það kom í ljós að Trump hafði ekki skilað öllum þeim opinberu gögnum sem hann hefði samkvæmt lögum átt að skila til Þjóðskjalasafnsins. Fleiri gögn voru sótt í júní og þá staðhæfðu lögmenn Trumps að engin frekari opinber og/eða leynileg gögn væri að finna í Flórída. Það var ósatt og lék grunur á að gögn hefðu verið falin. Sá grunur virðist hafa reynst réttur en FBI framkvæmdi húsleit í Flórída í ágúst og fannst þá mikið magn opinberra og leynilegra gagna.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Tengdar fréttir Bannon aftur ákærður fyrir svik vegna múrsins Stephen Bannon, langtímabandamaður Donalds Trumps og fyrrverandi ráðgjafi hans í Hvíta húsinu, hefur verið ákærður fyrir svik og fjárþvætti. Saksóknarar í New York saka hann um að svindla á fólki í tengslum við fjáröflunina „We Build the Wall“ sem safna átti peningum til byggingar múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. 8. september 2022 16:39 Segir MAGA-Repúblikana ógna Bandaríkjunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um Donald Trump, forvera sinn og stuðningsmenn hans, í ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Biden sagði að svo lengi sem Trump stjórnaði Repúblikanaflokknum ógnaði flokkurinn lýðræði í Bandaríkjunum. 2. september 2022 10:53 Lögmenn Trumps í vandræðum vegna ósanninda Nýtt dómskjal sem opinberað var í tengslum við rannsókn Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna á vörslu Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á opinberum og leynilegum gögnum í Flórída sýna að Evan Corcoran og Christina Bobb, tveir af lögmönnum Trumps, gætu staðið frammi fyrir ansi alvarlegum lagalegum vandræðum. Þau sýna einnig að Trump sjálfur gæti verið í hættu. 1. september 2022 14:50 Er rauða flóðbylgjan að verða að smá skvettu? Svo virðist sem að sú „rauða flóðbylgja“ sem spáð hefur verið að skelli á Bandaríkjunum í þingkosningunum í nóvember, ætli ekki að raungerast. Undanfarna mánuði hafa Repúblikanar virst í góðri stöðu til að ná völdum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og mögulega öldungadeildinni einnig. 24. ágúst 2022 22:31 Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. 19. ágúst 2022 08:01 Neitaði að svara spurningunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, neitaði að svara spurningum rannsakenda ríkissaksóknara New York við vitnaleiðslur í dag. Til þess nýtti hann rétt Bandaríkjamanna til þess að sakbenda sjálft sig ekki. 10. ágúst 2022 14:39 Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Sjá meira
Bannon aftur ákærður fyrir svik vegna múrsins Stephen Bannon, langtímabandamaður Donalds Trumps og fyrrverandi ráðgjafi hans í Hvíta húsinu, hefur verið ákærður fyrir svik og fjárþvætti. Saksóknarar í New York saka hann um að svindla á fólki í tengslum við fjáröflunina „We Build the Wall“ sem safna átti peningum til byggingar múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. 8. september 2022 16:39
Segir MAGA-Repúblikana ógna Bandaríkjunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um Donald Trump, forvera sinn og stuðningsmenn hans, í ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Biden sagði að svo lengi sem Trump stjórnaði Repúblikanaflokknum ógnaði flokkurinn lýðræði í Bandaríkjunum. 2. september 2022 10:53
Lögmenn Trumps í vandræðum vegna ósanninda Nýtt dómskjal sem opinberað var í tengslum við rannsókn Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna á vörslu Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á opinberum og leynilegum gögnum í Flórída sýna að Evan Corcoran og Christina Bobb, tveir af lögmönnum Trumps, gætu staðið frammi fyrir ansi alvarlegum lagalegum vandræðum. Þau sýna einnig að Trump sjálfur gæti verið í hættu. 1. september 2022 14:50
Er rauða flóðbylgjan að verða að smá skvettu? Svo virðist sem að sú „rauða flóðbylgja“ sem spáð hefur verið að skelli á Bandaríkjunum í þingkosningunum í nóvember, ætli ekki að raungerast. Undanfarna mánuði hafa Repúblikanar virst í góðri stöðu til að ná völdum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og mögulega öldungadeildinni einnig. 24. ágúst 2022 22:31
Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. 19. ágúst 2022 08:01
Neitaði að svara spurningunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, neitaði að svara spurningum rannsakenda ríkissaksóknara New York við vitnaleiðslur í dag. Til þess nýtti hann rétt Bandaríkjamanna til þess að sakbenda sjálft sig ekki. 10. ágúst 2022 14:39