Ráðin nýr framkvæmdastjóri hjá Dohop Atli Ísleifsson skrifar 8. september 2022 08:58 Ingunn Svala Leifsdóttir Aðsend Ingunn Svala Leifsdóttir hefur verið ráðin nýr framkæmdastjóri rekstrar hjá Dohop (e. COO) og mun hún sem slíkur bera ábyrgð á fjármálum og rekstri félagsins. Hún mun sitja í framkvæmdastjórn Dohop.
Í tilkynningu segir að Ingunn Svala hafi starfað sem framkvæmdastjóri rekstrar Háskólans í Reykjavík frá árinu 2015. „Hún hefur fjölbreytta reynslu af stjórnarstörfum og situr í stjórn Kviku banka hf., Slippsins Akureyri ehf. og vörustýringarfélagsins Parlogis ehf. ásamt móðurfélagi þess, Ósum. Ingunn Svala sat í endurskoðunarnefnd VÍS hf. á árunum 2019 til 2021 og í stjórn Líftryggingafélags Íslands á árunum 2017 til 2021. Ingunn Svala hefur einnig víðtæka reynslu úr fjármálageiranum en hún starfaði meðal annars fyrir skilanefnd Kaupþings sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs bankans á árunum 2009 til 2011 og á árunum 2007 til 2009 starfaði hún sem fjármálastjóri á fjárfestingabankasviði (e. global business controller) hjá Kaupþingi banka. Þá starfaði Ingunn Svala innan Actavis Group samsteypunnar á árunum 2001 til 2007 sem fjármálastjóri Actavis hf., Medís ehf., Actavis Group hf. og Actavis Group PTC ehf,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að hún hafi lokið BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1999, með áherslu á reikningshald og fjármál, og Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2001, með áherslu á reikningshald og stjórnun. Ingunn Svala lauk Advanced Management program (AMP) frá IESE Business School í New York árið 2018. Dohop gerir flugfélögum kleift að selja tengiflug með öðrum flugfélögum og leyfir þeim að fjölga þannig áfangastöðum og þjóna fleiri farþegum en ella. Tækni Dohop er notuð af flugfélögum og samtökum flugfélaga um allan heim á borð við easyJet, Transavia, Air France, Jetstar og SkyTeam.
Vistaskipti Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira