Afturelding sótti þrjú stig fyrir vestan Atli Arason skrifar 16. júlí 2022 17:14 Hinn belgíski Marciano Aziz skoraði tvö mörk fyrir Aftureldingu. Twitter/UMFAfturelding Lið Aftureldingar úr Mosfellsbæ gerði sér góða ferð á Vestfirði og vann 1-4 sigur á liði Vestra í Lengjudeild karla í fótbolta.
Það voru þó heimamenn sem byrjuðu leikinn betur er þeir skoruðu fyrsta mark leiksins á 26. mínútu. Var þar að verki Silas Songani frá Simbabve og Vestri var 1-0 yfir í hálfleik. Kári Steinn Hlífarsson jafnaði leikinn fyrir Aftureldingu þegar níu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik en rúmum 13 mínútum eftir mark Kára, á 67. mínútu, fékk Elmar Atli Garðarsson, leikmaður Vestra, að líta á sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt. Gestirnir gengu því á lagið einum leikmanni fleiri. Hrafn Guðmundsson kom Aftureldingu í forystu á 71. mínútu leiksins og Marciano Aziz bætti við tveimur mörkum rétt fyrir leikslok, á 88. og 94. mínútu. Lokatölur voru því 1-4 fyrir Aftureldingu sem fer með sigrinum upp fyrir Vestra og í sjöunda sæti deildarinnar með 16 stig. Vestri er með jafn mörg stig en töluvert lakari markatölu sem gerir að verkum að þeir sitja í 9. sæti deildarinnar, níu stigum fyrir ofan fallsvæðið. Næsti leikur Vestra er einnig á heimavelli en í þetta sinn gegn Gróttu næsta laugardag. Afturelding fer hins vegar í heimsókn til Grindavíkur fimmtudaginn 21. júlí. Upplýsingar um markaskorara koma af vef KSÍ.
Lengjudeild karla Afturelding Vestri Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Sport Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira