Til mikils að vinna slái maður ekki garðinn sinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. júlí 2022 14:30 Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur, segist elska lyktina af nýslegnu grasi en það geti hins vegar verið mjög fyrir lífríkið að sleppa því að slá garðinn sinn. Bylgjan Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur mætti í Bítið til að ræða um Villigarðahreyfinguna sem hefur talað fyrir því að fólk slái ekki garða sína og hvað maður gæti grætt á að leyfa garðinum að vaxa villtum. Hún segir að slái maður ekki garðinn sinn geti ýmsar skemmtilegar plöntur farið að vaxa auk þess sem það viðhaldi líffræðilegum fjölbreytileika.
Aðspurð hvort að það væru bara letingjar sem væru í Villigarðahreyfingunni sagðist Guðríður halda ekki. Þarna væri fólk sem hefði áhuga á að fylgjast með náttúrulegum gróðri vaxa enda væri „margt af því sem við sjáum vaxa upp, eins og sóleyjar og fíflar, gullfallegar plöntur þó við séum innstillt á að finnast þær vera illgresi.“ Fífillinn getur verið mjög fallegur í fullum skrúða á sumrin.Getty „Þegar við erum að reita arfa og stýra því hvaða plöntur við viljum hafa þá erum við fyrst og fremst að hugsa um okkur en ekki skordýralífið í garðinum,“ sagði Guðríður um garðaviðhald. „Við viljum hafa ákveðna líffræðilega fjölbreytni og það er kannski ekki óeðlilegt í svona ræktuðu borgarumhverfi að það komi upp svona hreyfing þar sem fólk vill hafa villta náttúru.“ Ýmislegan gróða að fá við aukinn gróður Aðspurð hvað maður gæti séð ef maður slægi ekki garðinn sinn sagði Guðríður að það færi eftir því hvað maður gerði. „Ef við berum áburð á svæðið þá eru það grösin sem taka yfirhöndina. Þá er hætta á að maður fái stórvaxin frekjugrös eins og snarrótarpunt sem er algjör skessa.“ Guðríður segi að ef maður beri áburð á grasið þá geti maður fengið skessur eins og snarrótarpuntinnGetty „Ef við berum ekki á svæðið skapast smám saman tækifæri fyrir plöntur sem eru harðari í samkeppninni. Við fáum inn sóleyjar, fífla og svo skarifífil sem er litli fallegi fífillinn sem blómstrar á seinni hluta sumars. Í borgarumhverfinu er líklegt að maður geti fengið roðafífil sem blómstrar skærappelsínugölum blómum.“ Roðafífillinn er tiltölulega nýr í flóru Íslands og ber falleg appelsínugul blóm.Getty Þá segir hún að ef það eru ekki til staðar frekjugrös þá verður smám saman móasvæði á þessum stöðum. Þá sé hægt að sá inn nýjum tegundum og Guðríður nefndi sem dæmi að á umferðareyjum í efri byggðum Kópavogs væri kominn gullfallegur gullkollur og maður sæi þar líka blóðberg. Sé jarðvegurinn nægilega rýr fáist inn lágvaxnar og fallegar tegundir. Það þurfi að sýna tillit í óræktinni Annað sem þurfi að taka tillit til í borgarumhverfinu er að ef maður ætli að vera með villtan garð þarf maður samt að passa vöxtinn og sýna nágrönnum tillitsemi. Sumar plantnanna sem komi inn þegar maður ræktar villigarðinn átti sig ekki á því hvar lóðamörkin séu. Skriðsóleyin getur verið of dugleg að mati margra enda yfirleitt flokkuð sem illgresi.Getty „Skriðsóleyin sem er mjög falleg og dugleg þekjuplanta, svo dugleg að hún getur lagt undir sig heilu hverfin ef ekkert er gert. Það er fínt fyrir mig að ákveða að vera með villigarð en þá verð ég að passa að plönturnar sem mega vera villtar hjá mér séu ekki að vaða yfir í vel snyrta garða nágranna minna.“ Sniðugt að sveitarfélög dragi úr slætti Þegar Heimir nefndi við Guðríði að Árni Bragason, landgræðslustjóri hafi verið að hvetja sveitarfélögin til að draga úr slætti sagðist Guðríður vera sammála Árna. „Það er til fyrirbæri sem heitir blómaengi og þá er maður yfirleitt með hátt hlutfall af blómstrandi tegundum sem eru fallegar yfir sumarið.“ Slíkt engi sé gjarnan slegið einu sinni yfir sumarið og þá sé allt grasið hirt af því þarna gangi lífið út á að vera með rýran jarðveg og ekki allt of mikinn áburð. „Við erum að horfa á að reyna að minnka kolefnissporið og auka líffræðilega fjölbreytni. Þá er þetta eitt af því sem er rosalega skynsamlegt að gera, að velja hvaða svæði maður ætlar að velja til að hafa snyrtileg og hvaða svæði mega vera svolítið villt.“
Blóm Garðyrkja Bítið Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira