Leggur blessun sína yfir auglýsingar Nettós um „fría heimsendingu“ Atli Ísleifsson skrifar 25. maí 2022 13:20 Verslun Nettós í Grindavík. Vísir/Vilhelm Neytendastofa hefur lagt blessun sína yfir auglýsingar matvörukeðjunnar Nettós þar sem segir frá „fríum heimsendingum“ ef verslað væri fyrir meira en fimm þúsund krónur.
Stofnunin tók málið til skoðunar eftir að ábending barst frá neytenda. Í umræddri auglýsingu sagði meðal annars að: „Frí heimsending alla vikuna*“ og í minni texta fyrir neðan „Þegar verslaðar eru matvörur fyrir 5.000 kr. eða meira.“ Í ákvörðun Neytendastofu er fjallað um að stofnunin geri ekki athugasemdir við það þó fyrirtæki bjóði neytendum kaupauka. „Til þess að unnt sé að kynna kaupauka með orðinu „frítt“ þarf hann sannanlega að vera neytendum að kostnaðarlausu, allar forsendur að koma skýrt fram og neytendum ekki veittar villandi upplýsingar með öðrum hætti. Eftir skýringar fyrirtækisins [Samkaupa, rekstraraðila Nettós] var það niðurstaða Neytendastofu að ekkert benti til þess að kostnaður hinnar fríu þjónustu hafi verið bætt við almennt verðlag. Þá var það mat stofnunarinnar að forsendur og skilyrði þess að fá þjónustuna fría kæmu fram. Því væri ekki tilefni til frekari aðgerða eða athugasemda í málinu,“ segir á vef Neytendastofu.
Verslun Auglýsinga- og markaðsmál Neytendur Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira