Carrie Lam hefur ekki áhuga á að sitja áfram Atli Ísleifsson skrifar 4. apríl 2022 10:41 Carrie Lam tók við embætti leiðtoga heimastjórnar Hong Kong árið 2017. AP Carrie Lam, leiðtogi heimastjórnar Hong Kong, hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri þegar skipunartímabil hennar er á enda. Stjórnartíð hennar hefur verið umdeild og einkennst af því að mjög hefur gengið á réttindi borgaranna.
Síðustu ár hafa reglulega borist fréttir af fjölmennum mótmælaaðgerðum í Hong Kong eftir sífellt sterkari ítök stjórnvalda á fastalandinu í Kína. Hin 64 ára Carrie Lam var handvalin af stjórnvöldum í Peking til að fara með embætti leiðtoga heimastjórnar Hong Kong árið 2017. Lam sagði blaðamönnum frá því í morgun að hún hafi greint stjórnvöldum í Kína frá því þegar á síðasta ári að hún hefði ekki áhuga á að sækjast eftir endurkjöri þegar skipunartími hennar væri á enda á þessu ári. Hún segist ætla að einbeita sér að fjölskyldunni þegar hún lætur af embætti. John Lee, háttsettur embættismaður innan heimastjórnar Hong Kong, þykir líklegastur til að taka við af Lam. Hann er fyrrverandi lögreglumaður og var áberandi í baráttu stjórnvalda við mótmælendur sem kröfðust lýðræðisumbóta árið 2019. Mikill fjöldi mótmælenda var handtekinn og dæmdur vegna aðildar að mótmælunum. Um 1.500 manna nefnd, sem er aðallega skipuð mönnum sem eru trúir stjórnvöldum í Kína, skipar leiðtoga heimastjórnar Hong Kong.
Hong Kong Kína Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira