Sif spilar undir stjórn eiginmannsins hjá Selfossi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. desember 2021 11:18 Sif Atladóttir lék síðast á Íslandi 2009. vísir/bára Landsliðskonan Sif Atladóttir er gengin í raðir Selfoss. Þar mun hún leika undir stjórn eiginmanns síns, Björns Sigurbjörnssonar.
Sif yfirgaf Kristianstad í haust eftir áratugardvöl hjá félaginu. Hún lék áður með Saarbrücken í Þýskalandi í eitt ár. Sif, sem er 36 ára, lék með Val, Þrótti, FH og KR áður en hún fór í atvinnumennsku. „Ég er mjög spennt fyrir því að spila fyrir Selfoss á næsta ári. Ég fylgist alltaf með deildinni heima þó að ég hafi verið erlendis og það hefur verið gaman að sjá stígandann hjá Selfoss síðastliðin ár. Það eru margar ungar og efnilegar stelpur sem hafa fengið stór hlutverk í liðinu og þarna er flottur hópur sem verður gaman að fá að kynnast,“ segir Sif í fréttatilkynningu frá Selfossi. Sif hefur leikið 84 landsleiki og farið með landsliðinu á þrjú Evrópumót. Hún stefnir á að fara á það fjórða á Englandi næsta sumar. Björn var ráðinn þjálfari Selfoss í haust. Hann tók við starfinu af Alfreð Elíasi Jóhannssyni sem hætti eftir síðasta tímabili. Alfreð stýrði Selfossi í fimm ár og gerði liðið að bikarmeisturum 2019. Björn var áður aðstoðarþjálfari Kristianstad. Á síðasta tímabili endaði Selfoss í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar.
Pepsi Max-deild kvenna UMF Selfoss Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira