Á byrjunarreit Alexander Ingi Olsen skrifar 13. nóvember 2021 17:00 Eftir 20 mánuði af því að „hlusta á sérfræðingana“ erum við komin aftur á byrjunarreit. Ein illa rekin ríkisstofnun sem ræður ekki við verkefni sín kallar eftir víðtækum frelssisskerðingum sem hola samfélagið að innan og ráðherrarnir bregðast við kallinu. Það virðist enginn sérstakur ágreiningur um frelsismál vera á milli Vinstri grænna og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, frelsi einstaklingsins og mannréttindi ná ekki lengra en hið opinbera ákveður að sé farsælt fyrir heildina. Ég velti fyrir mér hvort ég sé að misskilja grunngildi flokksins eða hvort ákveðnum einstaklingum liggi svo ofboðslega á að halda í ráðherrastól að tilgangurinn helgi meðalið. Helsti „sérfræðingur“ stjórnvalda segist sjá ljós við enda ganganna. Það eru bóluefni sem nú þegar er búið að gefa 90% landsmanna yfir 12 ára aldri tvisvar sinnum. Eftir að hafa haft rangt fyrir sér um það áður þá segir hann að nú eftir þriðja skiptið komi hjarðónæmið, það segi rannsókn frá Ísrael. Ekki fylgir þó sögunni að 2-3 mánuðir eru síðan þriðji skammturinn var gefinn þar og því engar forsendur til að ætla að vörnin endist neitt lengur en eftir fyrri skammta, sem fjarar út á 3-6 mánuðum. Enn fremur þá virðast Ísraelsmenn ekki sérlega bjartsýnir á hjarðónæmið sjálfir enda undirbúa þeir nú að gefa fjórða skammtinn. Það ætti því að vera öllum ljóst að það sé mjög loðið að ætla þriðja skammtinum að leysa vanda heilbrigðiskerfisins. Ég velti fyrir mér afhverju ráðherrarnir halda það, hafa þeir ekki kynnt sér málið? Treysta þeir í blindni á embættismann sem ítrekað hefur sýnt að hann fari ekki alltaf með rétt mál? Þegar faraldurinn hófst fyrir nær 2 árum ákvað sóttvarnarlæknir Svía að fara aðra leið en flestir kollegar hans á Vesturlöndum. Hann taldi að við faraldrinum væri engin töfralausn og að fyrr eða síðar smitast flestir eða allir sama hvað er gert. Tilraunir til að fresta því myndu valda mun meiri samfélagslegum skaða en að undirbúa bara heilbrigðiskerfið undir baráttuna og reyna eftir bestu getu að vernda áhættuhópa. Hann hlaut mikla gagnrýni fyrir það í fjölmiðlum en stóð engu að síður fastur á sínu og sagði að stigin skyldu talin að leikslokum. Í dag er raunin sú að þrátt fyrir nær engar aðgerðir er faraldurinn ekkert samfélagslegt vandamál í Svíþjóð, lífið þar er eðlilegt. Þrátt fyrir að margir hafi veikst illa þar er heildardánartíðni í Svíþjóð á pari við fyrri ár og enn fremur nú orðin lægri en í Danmörku. Nú má túlka það á ýmsa vegu en ein túlkunin er sú, líkt og sumir spáðu, að aðgerðir í Danmörku hafi nú dregið fleiri til dauða en faraldurinn í Svíþjóð. Það má velta fyrir sér hvort hið sama verði upp á teningnum á Íslandi fyrr eða síðar. Fjöldi fylkja í Bandaríkjunum hafa ákveðið að fara sömu leið en Flórída aflétti fyrst fylkja öllum almennum aðgerðum fyrir rúmu ári síðan. Í dag er smittíðni þar ein sú lægsta í Bandaríkjunum og lífið eðlilegt. Það hljóta margir að spyrja sig nú hvenær þetta ástand muni enda, sérstaklega við sem skiljum að þriðja sprautan verður ekki töfralausnin sem ráðherrarnir treysta á. Það getur hver maður reiknað hve lengi þjóðin verður að ná hjarðónæmi ef yfirvöldum tekst að halda smitum í kringum 50 á dag líkt og áformað er, það tæki áratugi. Það er engin samstaða um slíkt og ætti ekki að vera. Það er augljóst að skaðinn af því verður margfaldur samanborið við áhlaup á heilbrigðiskerfið, með eða án ráðstafana til að bregðast við því. Við höfum öll rétt á að lifa þessu eina lífi sem við fáum, burtséð frá rekstrarvanda einstakra ríkisstofnana. Ég kalla eftir því að ráðherrar gangist tafarlaust við hlutverki sínu sem leiðtogar, hætti öllum almennum sóttvarnaraðgerðum, geri viðeigandi ráðstafanir í heilbrigðiskerfinu og leyfi okkur að halda áfram með lífið. Höfundur er atvinnulaus flugmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun