Áhrifum fylgir ábyrgð Ása Valdís Árnadóttir skrifar 7. apríl 2026 10:17 Undanfarið hef ég velt því fyrir mér hvað felst raunverulega í því að vera íbúi sveitarfélags. Er það einfaldlega skráning í þjóðskrá eða felst í því meira? Sem íbúi í Grímsnes- og Grafningshreppi og fráfarandi oddviti hef ég haft tækifæri til að kynnast sveitarfélaginu frá mörgum hliðum. Ég þekki daglegt líf í sveitarfélaginu, þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og þau tækifæri sem felast í samfélaginu okkar. Íbúar eiga ekki aðeins að hafa rödd, þeir taka þátt. Íbúi er ekki aðeins sá sem hefur skráð lögheimili, heldur sá sem þekkir samfélagið og hefur raunveruleg tengsl við daglegt líf þess. Lýðræði byggir ekki á skráningu á pappír, heldur á ábyrgð, þátttöku og tengingu. Í dag eru tvö framboð í sveitarfélaginu sem bjóða fram krafta sína. Það er eðlilegt og jákvætt í lýðræðissamfélagi. En það skiptir máli hvernig umræðan er háð. Það er alvarlegt þegar umræðan fer á þá braut að draga heilindi og störf fráfarandi sveitarstjórnar í efa án skýrra raka. Slíkur málflutningur byggir ekki upp traust, hann grefur undan því. Í lýðræðissamfélagi eigum við að takast á um málefni af festu og rökum, en ekki með dylgjum eða órökstuddum ásökunum. Undanfarið hefur einnig borið á umræðu þar sem ákvarðanir sveitarstjórnar eru settar fram sem einhvers konar aðför gegn einstaklingum. Slík framsetning einfaldar veruleikann. Sveitarstjórn starfar ekki á grundvelli einstakra mála eða persónulegra sjónarmiða, heldur ber hún ábyrgð á að fara eftir lögum, gæta jafnræðis og taka ákvarðanir sem þjóna heildarhagsmunum samfélagsins. Ég get ekki orða bundist þegar ítrekað er dregið úr heilindum kjörinna fulltrúa án haldbærra raka. Slík orðræða er ekki málefnaleg gagnrýni, hún er einföldun og í versta falli rangfærsla sem grefur undan trausti á stjórnsýslu. Kjörnir fulltrúar eru fólk, íbúar eins og aðrir, sem bera ábyrgð á ákvörðunum sem hafa áhrif á daglegt líf samfélagsins. Því skiptir máli að gagnrýni sé málefnaleg og að við vöndum orðræðuna, þannig byggjum við upp traust. Það er auðvelt að tala hátt og lofa einföldum lausnum. Það er erfiðara að bera ábyrgð á raunverulegum ákvörðunum. Á sama tíma vekur það spurningar um jafnræði hvernig best sé að tryggja að þeir sem taka ákvarðanir um samfélagið hafi raunverulega tengingu við það og þekki þær aðstæður sem þær snúa að. Þetta snýst ekki um að útiloka, heldur að standa vörð um sanngirni og skýrar leikreglur sem allir geta treyst. Íbúar eiga svo sannarlega að ráða. Ekki utanaðkomandi aðilar sem hafa takmarkaða tengingu við samfélagið eða standa utan við það daglega líf sem hér fer fram. Þá er einnig mikilvægt að framboð séu skýr og gagnsæ. Óljós sýn og óskýr stefna skapa óvissu. Kjósendur eiga rétt á því að vita fyrir hvað er staðið og hvaða leið á að fara. Þegar kemur að kosningum skiptir máli að staldra við og spyrja sig nokkurra einfaldra spurninga: Hverjir hafa raunverulega tengingu við samfélagið? Hverjir þekkja þær aðstæður sem ákvarðanir snúa að? Og hverjir eru tilbúnir að bera ábyrgð á þeim ákvörðunum til lengri tíma? Kosningar snúast ekki aðeins um loforð, heldur um traust, reynslu og ábyrgð. Það skiptir máli hverjir taka ákvarðanir og ekki síður hvers vegna þeir gera það. Ég hvet íbúa Grímsnes- og Grafningshrepps til að kynna sér vel þau framboð sem eru í boði, skoða málflutning þeirra af gagnrýnum huga og velta fyrir sér hverjir hafi raunverulega tengingu við samfélagið, þekkingu á málefnum þess og vilja til að vinna í þágu þess til lengri tíma. Að taka þátt í samfélagi er val en áhrifum fylgir ábyrgð. Höfundur er íbúi í Grímsnes- og Grafningshreppi og fráfarandi oddviti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar