Talibanar voru komnir til Kabúl mánuðum áður en borgin féll Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. ágúst 2021 14:43 Talibanar leggja niður vopn sín fyrir föstudagsbænir í Kabúl. Getty/MARCUS YAM „Í byrjun júlí hitti ég einn herforingja Talibana. Ég spurði hvenær hermenn hans myndu koma til Kabúl. Hann svaraði: Þeir eru hérna nú þegar.“
Svona hefst grein sem var á forsíðu þýska fréttablaðsins Der Spiegel á föstudaginn. Fram kemur í greininni að löngu áður en Kabúl, höfuðborg Afganistan, féll fyrir hersveitum Talibana hafi þeir verið búnir að koma sér fyrir í borginni. Það útskýri hvers vegna hún féll á aðeins nokkrum klukkustundum. Allt frá því í apríl hafi stríður straumur Talibana legið í átt að höfuðborginni. Margir stríðsmannanna hafi komið sér fyrir í smábæjum fyrir utan borgarmörkin. Þeir hafi þó einnig verið farnir að koma sér fyrir innan borgarmarkanna, til að mynda í nágrenni við Qargha stöðuvatnið þar sem nóg er um störf. „Þegar rétti tíminn kemur verða Talibanar út um allt“ Íbúar Kabúl hafi sjálfir tekið eftir þessum straumi manna. „Þetta hófst í apríl,“ hefur blaðamaðurinn eftir félaga sínum, sem býr í vesturhluta Kabúl. „Fleiri og fleiri utan að landi voru allt í einu í hverfinu. Sumir voru skeggjaðir, aðrir ekki. Sumir klæddir fínum fötum, aðrir voru í dulum. Allir ólíkir. Þess vegna var svo erfitt að taka eftir þeim. En sumir íbúar föttuðu að þeir voru ekki héðan.“ Í byrjun júlímánaðar hitti blaðamaðurinn fyrir herforingja Talibana í Kabúl. Hann lýsti því að menn hans væru þegar komnir inn í borgina. „Þeir eru öryggisverðir á veitingastöðum, vinna í skemmtigarðinum, eru ræstitæknar. Þegar tíminn er réttur verða Talibanar út um allt.“ Sex vikum eftir fund blaðamannsins og herforingjans var hann kominn í forsetahöllina, ásamt öðrum leiðtogum Talibana. Markmið Vesturveldanna frá upphafi meingallað En hvers vegna gátu Talibanar komið sér svona rækilega fyrir í höfuðborginni án þess að nokkuð var við því gert? Blaðamaður Spiegel vill meina að það hafi ekki verið ákvörðun Joe Bidens Bandaríkjaforseta um að draga herlið Bandaríkjanna heim, eins og Donald Trump forveri hans vildi meina. Það hafi heldur ekki verið einhver stærri áætlun eins og Atta Mohammad Noor, herforingi og fyrrverandi ríkisstjóri Mazar-e-Sjarif hélt fram á Facebook og Ashraf Ghani, nú fyrrverandi forseti Afganistan, sagði í viðtali við Spiegel í maí. Nei, ástæðuna megi rekja allt til fyrstu daga innrásar Bandaríkjanna í Afganistan í október 2001. Innrás og markmið Bandaríkjanna frá upphafi verið meingallað. Bandaríkin hafi frá byrjun grafið undan markmiði sínu og meintu hlutverki í Afganistan. „Ranghugmyndir Vestursins komu upp strax í byrjun innrásarinnar, þegar Washington taldi að hernaðarinngrip myndi duga til að koma á friði í landinu. Þessar ranghugmyndir vörðu allt til loka hersetunnar,“ segir í greininni. „Önnur ranghugmynd var sú trú að hægt væri að byggja upp heila þjóð og vernda hana ef aðeins nægt fjármagn væri sett í uppbyggingu og nógu margir fengju þjálfun.“ Buðu grimmum herforingjum að taka þátt í stjórnmálunum Með hverju árinu sem hafi liðið á hersetu Bandaríkjanna og annarra Vesturvelda hafi líkurnar á að markmiðum þeirra yrði náð og þau héldust, minnkað. Bandaríkin réðust inn í Afganistan í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar á Tvíburaturnana í New York þann 11. september 2001. Hryðjuverkasamtökin al-Qaeda reyndust hafa framið árásina, en höfuðstöðvar þeirra voru í Afganistan á sínum tíma. Bandaríkin sneru sér til ríkisstjórnar Talibana og kröfðust að foringi al-Qaeda yrði afhentur. Nei svöruðu Talibanar. Og Bandaríkin gerðu innrás tæpum mánuði síðar, 7. október 2001. Sléttum tveimur mánuðum síðar var ríkisstjórn Talibana fallin og Bandaríkin höfðu sigrað. Í júní 2002 var boðað til fundar fyrir alla helstu þjóðbrotaleiðtoga í Afganistan. Zalmay Khalilzad, sérstakur talsmaður Bandaríkjanna, fékk það í gegn að á fundinum fengju fimmtíu menn til viðbótar að sitja. Það voru leiðtogar uppreisnarhersveita sem höfðu stjórnað landinu fyrir tíð Talibana. Þessir uppreisnarhersveitaleiðtogar höfðu barist gegn Sovétmönnum og afgönskum kommúnistum í borgarastyrjöld sem varði í nær tíu ár. Þessir sömu menn höfðu svo aðstoðað hersveitir Bandaríkjanna, undir stjórn Georges W. Bush forseta, að berjast gegn Talibönum. Meðal þessara herforingja voru Mohammed „Marshal“ Fahim, tadsjiskur herforingi sem sakaður var um fjöldamorð og mannrán, og Rashid Dostum, úsbeskur herforingi, sakaður um að hafa myrt hundruð handtekinna Talibana og að hafa fyrirskipað að andstæðingum hans yrði nauðgað. Báðir urðu síðar varaforsetar Afganistan. Langflestir fundarmanna urðu þá valdamiklir stjórnmálamenn eftir fall Talibana. Þrjátíu eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna myrtir Þegar leið á hersetuna bárust sífellt fleiri fregnir af ofbeldi sem stjórnarhermenn, Bandaríkjaher og hermenn annarra Vesturvelda beittu almenna borgara. Samkvæmt frétt Spiegel réttlættu vestrænir stjórnmálamenn það með því að „Talibanar væru þarna enn þá.“ „En það var ekki rétt. Þeir komu hægt og rólega aftur eftir að hafa ekki verið til staðar í nokkur ár, fyrst í suðri og svo í norðri.“ Að mati blaðamanns Spiegel voru það forsetakosningarnar 2009 sem geru útslagið. Hamid Karzai hafði setið sem forseti frá brotthvarfi Talibana og bauð sig fram að nýju. Hann bar sigur úr bítum en fljótlega eftir kosningar benti sífellt fleira til þess að hann hafi beitt víðtæku kosningasvindli. Svo boðað var til annarra kosninga. Eftirlitsmenn frá Sameinuðu þjóðunum skyldu fylgjast með þeim. Þann 28. október gerðu þrír menn árás á gistihúsið sem eftirlitsmenn SÞ dvöldu í og slátruðu þeim tæpu 30 eftirlitsmönnum sem voru í byggingunni. Eftir tveggja tíma umsátur komust fimm eftirlifendur út úr byggingunni en þeir voru skotnir til bana fyrir utan. Afganskir hermenn hafi staðið fyrir utan og fylgst með, án þess að gera nokkurn skapaðan hlut. Hálfbróðir forsetans fíkniefnabarón? Í kjölfarið var helmingur starfsmanna Sameinuðu þjóðanna í Afganistan sóttur og fluttur heim og endurkosningarnar blásnar af. Karzai var áfram forseti og niðurstöður fyrri atkvæðagreiðslu fengu að gilda. Á sama tíma var yfirlýst markmið Breta að berjast gegn aukinni fíkniefnaframleiðslu og -sölu í landinu. Þegar sérsveit breska hersins hafi fundið heilt vöruhús fullt af ópíum nærri Kandahar, sem var í eigu hálfbróðurs forsetans, hafi öllum breskum diplómötum verið skipað að segja ekki orð. Ekki mætti tengja Karzai við fíkniefnaframleiðslu. Með hverju árinu sem leið höfðu Bandaríkin, Bretland, Kanada og fleiri NATO ríki dælt fjármagni í uppbyggingu í Afganistan. Í stjórnartíð Baracks Obama Bandaríkjaforseta var hermönnum svo fjölgað, þeir urðu 100 þúsund talsins í Afganistan þegar mest var. Og Karzai forseti Afganistan nýtti sér hersetuna, fór að tala gegn henni og þessum erlendu öflum sem myndu aldrei yfirgefa Afganistan. Of mikið væri undir: fjármunir, náttúrulegar auðlindir, landfræðileg lega Afganistan væri of góð. Þessa orðræðu hafi Talibanar nýtt sér. Þessi erlendu öfl myndu aldrei fara. Forsetinn segði það meira að segja sjálfur. Berjast þyrfti gegn þessum erlendu öflum. Nýliðum í röðum Talibana fjölgaði með hverju árinu. Og þegar allt kom til alls, þegar Bretar, Bandaríkjamenn og önnur vestræn öfl yfirgáfu landið féll það í hendur Talibana á örfáum vikum. „Fljótlega gæti versnandi ástand neytt Vesturveldin til að gera eitthvað sem þau hafa eytt síðustu tuttugu árum í að gera allt til að koma í veg fyrir: Að viðurkenna og styðja stjórn Talibana í Afganistan.“
Afganistan Hernaður Bandaríkin Bretland Þýskaland Tengdar fréttir Biðla til stjórnvalda að bjarga ættingjum sínum frá Afganistan Hópur Afgana með íslenskan ríkisborgararétt krefst þess að stjórnvöld bjargi ættingjum sínum frá Afganistan. Fólkið sé í bráðri lífshættu eftir að Talibanar tóku völdin í landinu. Íslensk kona segir afganskan mág sinn í felum þar því hann óttist að verða tekinn af lífi vegna trúar sinnar. 23. ágúst 2021 13:31 Bregðast þurfi við í samstarfi við nágrannaþjóðir Félagsmálaráðherra segir að íslensk stjórnvöld geti ekki brugðist við stöðunni í Afganistan öðruvísi en í samstarfi við aðrar nágrannaþjóðir. Staðan sé afar flókin enda engin hefðbundin flóttamannamóttaka þar ytra lengur og ekkert hefðbundið flug. 23. ágúst 2021 13:08 Talibanar segjast hafa unnið aftur norðurhéruð Talsmaður talibana í Afganistan segir að þeir hafi náð aftur þremur héruðum í norðanverðu landinu sem uppreisnarhersveitir tóku í síðustu viku. Hersveitir andsnúnar talibönum eru enn í Panjshir-dal í Norður-Afganistan. 23. ágúst 2021 11:44 Mest lesið Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Sjá meira
Biðla til stjórnvalda að bjarga ættingjum sínum frá Afganistan Hópur Afgana með íslenskan ríkisborgararétt krefst þess að stjórnvöld bjargi ættingjum sínum frá Afganistan. Fólkið sé í bráðri lífshættu eftir að Talibanar tóku völdin í landinu. Íslensk kona segir afganskan mág sinn í felum þar því hann óttist að verða tekinn af lífi vegna trúar sinnar. 23. ágúst 2021 13:31
Bregðast þurfi við í samstarfi við nágrannaþjóðir Félagsmálaráðherra segir að íslensk stjórnvöld geti ekki brugðist við stöðunni í Afganistan öðruvísi en í samstarfi við aðrar nágrannaþjóðir. Staðan sé afar flókin enda engin hefðbundin flóttamannamóttaka þar ytra lengur og ekkert hefðbundið flug. 23. ágúst 2021 13:08
Talibanar segjast hafa unnið aftur norðurhéruð Talsmaður talibana í Afganistan segir að þeir hafi náð aftur þremur héruðum í norðanverðu landinu sem uppreisnarhersveitir tóku í síðustu viku. Hersveitir andsnúnar talibönum eru enn í Panjshir-dal í Norður-Afganistan. 23. ágúst 2021 11:44