Höfnuðu á ljósastaur og sökuðu hvor annan um að hafa ekið bílnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júlí 2021 07:17 Þeir sem vistaðir voru í fangaklefa í nótt fara væntanlega í skýrslutöku þegar rennur af þeim í dag. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur tilkynningum um innbrot í póstnúmeri 105 í Reykjavík með fjórtán mínútna millibili í gærkvöldi. Þá voru ökutæki stöðvuð víða á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt þar sem grunur er um að ökumaður hafi verið undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.
Venju samkvæmt greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu frá verkefnum sem sinnt var í gærkvöldi og nótt í fréttaskeyti til fjölmiðla í morgunsárið. Af átján verkefnum sem lögreglan segir frá sneru tíu þeirra að grun um akstri undir áhrifum. Tilkynnt var um innbrot á heimili í hverfi 105 um hálf átta leytið í gærkvöldi og stundarfjórðungi síðar í bifreið í sama hverfi. Ekki kemur fram hvort sömu aðilar hafi tilkynnt innbrotið eða hvort grunur sé um að sami aðili hafi verið þar á ferð. Á tólfta tímanum var tilkynnt um slagsmál í miðbæ Reykjavíkur og á fimmta tímanum í nótt barst lögreglu tilkynning um innbrot á ónefndan leikskóla vestan Elliðaár. Einstaklingur var til vandræða í strætó í póstnúmeri 113 á níunda tímanum í gærkvöldi. Þá sinnti, samkvæmt fréttaskeyti lögreglu, lögreglan í Kópavogi og Breiðholti útkalli klukkan 20:28 í Mosfellsbæ þar sem bíl hafði verið ekið á ljósastaur. Tveir einstaklingar voru í bifreiðinni og sökuðu þeir hvor annan um að hafa ekið. Báðir einstaklingarnir eru grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna. Báðir handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Tilkynnt var um innbrot í geymslu í fjölbýlishúsi í Kópavogi á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þá sinnti lögreglan á Vínlandsleið tilkynningu um hópslagsmál í Mosfellsbæ á öðrum tímanum í nótt.
Lögreglumál Næturlíf Reykjavík Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Vučić játar ósigur Erlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira