Ósáttir nágrannar leiddu til hópuppsagnar á hálfu starfsliði Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 14. júlí 2021 09:00 Hingað koma engir með skemmd dekk lengur. vísir/óttar proppé Rekstur fyrirtækisins Vöku er í hálfgerðu uppnámi og hefur meira en helmingi starfsfólks þess verið sagt upp eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála lét Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur draga starfsleyfi þess við Héðinsgötu 2 til baka. Þó nefndin setji sig aðallega upp á móti því að Vaka taki við bílhræjum á svæðinu hefur öll þjónusta fyrirtækisins í húsnæðinu verið stöðvuð.
Fyrirtækið er nú starfsleyfislaust við Héðinsgötu og má ekki sinna sinni hefðbundnu þjónustu þar, sem felst aðallega í að halda úti vélaverkstæði og hjólbarðaverkstæði. Starfsemi Vöku á svæðinu var ferns konar: Bílapartasala Bifreiða- og vélaverkstæði Hjólbarðaverkstæði Úrvinnsla vegna endurvinnslu bíla Um leið og starfsleyfinu var kippt úr gildi, vegna síðastnefnda atriðisins, missti Vaka einnig leyfi sitt fyrir þeim tveimur sem fara á undan því að öll þjónusta Vöku í húsnæðinu stólar á sama starfsleyfið sem er ekki lengur fyrir hendi. Vaka má nú aðeins selja bílaparta út úr húsi en ekki taka við bílum inn á verkstæði sitt. Sala bílaparta og viðgerðir á bílum haldast oft í hendur í þjónustu fyrirtækja eins og Vöku. Fyrirtækið má einnig halda áfram að sinna dráttarþjónustu sinni enda er sú starfsemi ekki bundin við húsnæðið við Héðinsgötu 2. vísir/óttar proppé Harkalegt af nefndinni Málið er um margt undarlegt og má ljóst vera af gögnum þess að Heilbrigðiseftirlitið og byggingafulltrúi og skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar séu ósammála úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um túlkun ýmissa atriða. Það voru nágrannar fyrirtækisins, íbúar á Kleppsvegi, sem kærðu starfsleyfið til nefndarinnar. Þeir fóru upphaflega að lýsa óánægju sinni með fyrirtækið þegar bílhræ og gámar höfðu safnast upp fyrir utan húsnæði Vöku og í einhverjum tilfellum fyrir utan lóðamörk fyrirtækisins. Sú tíð sóðaskapar er þó liðin að sögn Reynis Þórs Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Vöku. Nú sé allt á lóð fyrirtækisins í ágætu standi og lítil mengun sé þar á ferð. Hann segir málið leiðinlegt: „Það er hrikalegt að þurfa að segja upp meira en helmingi starfsfólksins. Þetta voru fjórtán manns. Það er ekki auðvelt að vera atvinnulaus í dag.“ Honum þykir harkalegt af nefndinni að hafa samþykkt kröfuna um að fella leyfið niður; leyfið hafi verið tímabundið til áramóta, því þá hafi Vaka ætlað að færa hluta starfseminnar til Hafnarfjarðar. Reynir Þór Guðmundsson er ekki sáttur með hvernig málið hefur farið hingað til.vísir/iceland aviation „Þetta er tímabundið starfsleyfi til áramóta. Það að fella það niður alveg fyrirvaralaust er rosalega gróft, eða mjög íþyngjandi eins og það væri kallað á stjórnsýslumáli,“ segir Reynir Þór í samtali við Vísi. Léttur eða þungur iðnaður? Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er svæðið, sem er kallað Köllunarklettur, skilgreint sem miðsvæði og er þar aðeins heimild fyrir svokölluðum „léttum iðnaði“. Svæðið sem um ræðir er rétt fyrir ofan Sundahöfn og í nágrenninu eru fleiri verkstæði og önnur sambærileg starfsemi. Það virðist þó algerlega vanta almenna skilgreiningu á því hvað falli undir hugtakið „léttur iðnaður“ og þar stendur hnífurinn í kúnni. Í umsögn skipulagsfulltrúa kemur fram að hugtakið sé ekki til í neinum reglugerðum sem heilbrigðiseftirlitið vinnur eftir. Engin viðmið séu fyrir hendi sem horfa má til varðandi hugtakið eða við hvaða aðstæður starfsemi teljist vera léttur eða þungur iðnaður. Skipulagsfulltrúi segir að það sé Heilbrigðiseftirlitsins að meta hvort starfsemi Vöku falli undir hugtakið og svo virðist sem Heilbrigðiseftirlitið hafi talið svo vera þegar það veitti Vöku starfsleyfi í byrjun þessa árs. Í verklýsingu umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar vegna breytinga á aðalskipulaginu má þó finna neðanmálsgrein við lýsingu á miðsvæðum, líkt og svæðinu sem um ræðir hér: „Á mörgum miðsvæðum verður þó léttur iðnaður og ýmis þjónustuiðnaður eins og verkstæði, áfram mögulegur,“ segir þar. Listi úr verklýsingu umhverfis- og skipulagssviðs vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010-2030.reykjavíkurborg Sem dæmi um fleiri svæði þar sem aðeins er heimilaður léttur iðnaður má nefna Esjumela, Hálsa, Höfða og Norðlingaholt. Í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála virðist nefndin þó ákveða hvernig skilgreina eigi þennan létta iðnað, að minnsta kosti vill hún ekki fallast á að starfsemi Vöku falli undir hugtakið, því þar er tekið við bílhræjum: „Er því ekki hægt að telja að hin umþrætta starfsemi geti talist vera léttur iðnaður í skilningi gildandi aðalskipulags, enda verður að skýra það hugtak í samræmi við þau ákvæði skipulagsreglugerðar sem áður eru rakin. Starfsemin hefur í för með sér mengunarhættu og er ekki hægt að fallast á að hún sé hreinleg. Getur hún því ekki fallið undir landnotkunarflokkinn miðsvæði, eins og hann er skilgreindur í skipulagsreglugerð,“ segir í niðurstöðu úrskurðarins. Ósammála borginni um túlkun á deiliskipulagi Með þessu segir nefndin að starfsemi Vöku á lóðinni samræmist ekki aðalskipulagi Reykjavíkurborgar, sem gerir ekki ráð fyrir meiru en „léttum iðnaði“. Með þessu segir nefndin að starfsleyfið fari beinlínis gegn aðalskipulagi borgarinnar, þó Heilbrigðiseftirlitið vilji ekki meina að svo sé. En það er fleira sem nefndin segir Heilbrigðiseftirlitið og byggingafulltrúi borgarinnar hafa túlkað rangt þegar starfsleyfið var veitt upphaflega. Það á einnig að fara á svig við deiliskipulag svæðisins. Í rökum nágrannanna sem kæra leyfisveitinguna kemur fram að deiliskipulag fyrir húsnæðið, Héðinsgötu 2, sé „einungis heimil“ starfsemi umbúðaframleiðslu, vörugeymslu og þjónustu. Starfsemi Vöku falli ekki undir þetta. Þetta virðist nefndin taka undir þrátt fyrir skýringar Heilbrigðiseftirlitsins: „Í umræddu deiliskipulagi fyrir Héðinsgötu 2 komi fram að þar sé umbúðaframleiðsla, vörugeymslur og þjónusta. Hvergi komi fram að skylt sé að hafa eða að einungis sé heimilt að hafa umbúðaframleiðslu, vörugeymslu og þjónustu við Héðinsgötu 2, heldur sé í deiliskipulaginu verið að segja hvaða starfsemi hafi verið þar þegar umrætt deiliskipulag hafi verið samþykkt,“ segir í úrskurðinum þar sem málsrök Heilbrigðiseftirlitsins eru rakin. Hvort Vaka geti aftur tekið til nokkuð eðlilegra starfa á næstunni verður að koma í ljós en Reynir Þór segir við Vísi að verið sé að leita leiða til að greiða úr málinu.
Reykjavík Umhverfismál Mest lesið Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Veður Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Erlent Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Erlent Mesta kvikusöfnun til þessa Innlent Ætla að fara fram á frávísun málsins Innlent Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Innlent „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Innlent Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Innlent Fleiri fréttir Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Færri strætóferðir um páskana Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Hellisheiðin opin að nýju og snjókoma í borginni Sjá meira