Fimm ára fangelsi fyrir ítrekaðar nauðganir gegn fyrrverandi sambýliskonu og barnsmóður á Akureyri Atli Ísleifsson skrifar 8. júní 2021 08:08 Árásin átti sér stað á heimili hins dæmda á Akureyri í september á síðasta ári. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun og stórfellt brot í nánu sambandi. Brotin, sem eru í áttu sér stað á heimili mannsins á Akureyri, voru framin föstudaginn 18. september á síðasta ári.
Í ákæru segir að maðurinn, sem er á fertugsaldri, hafi á alvarlegan og sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt ógnað heilsu og velferð fyrrverandi sambýliskonu og barnsmóður sinnar, þegar hann þvingaði konuna ítrekað yfir daginn til samræðis, endaþarmsmaka og munnmaka með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Sló hann konuna, tók hana hálstaki í tvígang og þrengdi að öndunarvegi hennar svo hún missti meðvitund, reif í hár hennar og kleip hana, auk þess sem ákærði hætti ekki þótt grátbæði hann um það. Stóð árásin yfir í marga klukkutíma. Konan hlaut af þessu fjölda áverka víðs vegar um líkamann, líkt og rakið er í ákæru. Slitrótt samband Dómur í málinu var kveðinn upp í þarsíðustu viku en birtur í gær. Maðurinn neitaði sök í málinu og sagði þau hafa stundað gróft kynlíf umræddan dag, allt með samþykki konunnar. Í dómnum er rakið að þau hafi byrjað í sambandi árið 2014 eða 2015, hann þá 27 ára og hún átján ára. Sagði ákærði fyrir dómi að sambandið hafi alla tíð verið stormasamt, þau ítrekað hætt saman og svo aftur tekið saman. Hann játaði að hafa áður beitt konuna ofbeldi, en í dómnum kemur fram að hann hafi árið 2019 verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir margítrekuð brot gegn konunni á árunum 2015 til 2018. Ákærði svaraði því ekki hvernig konan hafi veitt samþykki sitt umræddan dag, en konan sagðist hins vegar margsinnis hafa beðið hann um að hætta, hágrátið og jafnvel öskrað af sársauka. Sagði hún þau áður hafa stundað gróft kynlíf en það hafi verið ólíkt því sem þarna gerðist. Hniprað sig saman, óglatt og með svima Í dómi er rakið hvernig konan hafi eftir árásina farið af heimili mannsins og til vinkonu sinnar sem lýsti því fyrir dómi að hún hafi verið grátbólgin, illa til reika og liðið illa. Þær hafi haldið á neyðarmóttöku, en í skýrslu kvensjúkdómalæknis og hjúkrunarfræðings segir að konan hafi verið þreytuleg og fjarræn þegar hún hafi komið til skoðunar. Þá segir að „frásögn hennar hafi verið skýr en hún átt erfitt með að tímasetja það sem gerðist nema upphaf og endi. Hún hafi hniprað sig saman, verið kalt, liðið illa, með svima og ógleði. Hún hafi verið hrædd og fundist minningin renna saman í endalaust ofbeldi“ Má sín lítils gagnvart ákærða Í dómnum segir að ljóst sé að konan megi sín lítils gagnvart ákærða, líkamlega og andlega, og sé dauðhrædd við hann. Sé hún illa haldin af áfallastreitu og ótta. Framburður hennar var metinn trúverðugur og verði það ekki talið draga úr trúverðugleika hennar að hún geti ekki skýrt frá atvikum í tímaröð eða gert grein fyrir hverri stund á meðan hún var hjá ákærða. Enda vart við því að búast í slíkum aðstæðum, auk þess sem hún missti meðvitund í tvígang. Með vísan til framburðar konunnar, mikilla líkamlegra áverka hennar, andlegs ástands hennar við komu á neyðarmóttöku og staðfestingar meðferðaraðila á mjög versnandi andlegu ástandi hennar í kjölfar þessara atvika, sé það álit dómsins að hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi þvingað konuna til að þola það ofbeldi sem lýst sé í ákæru. Verði hann því sakfelldur. Auk þess að vera dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir brotin var maðurinn dæmdur til að greiða konunni fjórar milljóna króna í miskabætur, auk rúmlega þriggja milljóna króna í sakarkostnað.
Akureyri Dómsmál Kynferðisofbeldi Heimilisofbeldi Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira