Bjóst við sjö börnum en fæddi níu Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2021 19:04 Nokkur af börnunum níu. Heilbrigðisráðuneyti Malí Kona fæddi nýverið níu börn, þó hún hafi bara átt von á sjö. Sónar hafði sýnt fram á að konan væri ólétt af sjö börnum en við fæðingu í gær reyndust þau níu. Fimm stúlkur og fjórir drengir og öllum heilsast víst vel.
Heilbrigðisráðuneyti Malí opinberaði fæðinguna merkilegu í gær. Móðirin, sem heitir Halima Cisse og er 25 ára gömul, er frá Malí en fæðingin fór fram á sjúkrahúsi í Marokkó. Börnin voru tekin með keisaraskurði. Samkvæmt frétt BBC er bandarísk kona skráð í heimsmetabók Guinnes fyrir að hafa fætt átta lifandi börn árið 2009. Enginn á að hafa fætt fleiri börn. Vitað er til þess að tvær konur hafi áður fætt níbura. Ein í Ástralíu árið 1971 og önnur í Malasíu árið 1999. Ekkert þeirra barna lifði þó lengur en í nokkra daga. Ólétta Cisse hefur vakið mikla athygli í Malí. Hún var á sjúkrahúsi í Bamako, höfuðborg landsins, í tvær vikur en var svo flutt til Morokkó þann 30. mars. Eiginmaður hennar, Kader Arby, er enn í Malí með eldri dóttur þeirra hjóna. Í samtali við BBC segist hann hafa verið i stöðugum samskiptum við Cisse. Þá segist hann ekki óttast að eignast svona mörg börn. Þau séu gjöf frá guði og hann muni sjá um þau. Þá þakkaði hann íbúum og yfirvöldum Malí fyrir stuðninginn. Búist er við því að Cisse og börn hennar tíu fari aftur til Malí eftir nokkrar vikur.
Malí Marokkó Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira