Joshua Wong dæmdur í 13,5 mánaða fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 2. desember 2020 09:06 Joshua Wong og félagar hafa lengi krafist lýðræðisumbóta í Hong Kong. AP Dómstóll í Hong Kong hefur dæmt hinn 24 ára Joshua Wong, einn helsta leiðtoga mótmælenda þar í landi, í þrettán og hálfs mánaða fangelsi fyrir þátt sinn í ólöglegum mótmælum sem beindust gegn stjórnvöldum á síðasta ári.
Reuters segir frá þessu og hefur eftir stjórnarandstæðingum að yfirvöld í Hong Kong, sem njóta stuðnings kínverskra stjórnvalda, hafi sett aukinn þunga í ofsóknir sínar gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum. Wong játaði sök í málinu, að hafa skipulagt og hvatt til ólöglegrar samkomu nærri höfuðstöðvum lögreglunnar þegar mótmælaaldan í Hong Kong stóð sem hæst í júní á síðasta ári. Samkvæmt refsiramma átti Wong yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi, en niðurstaða dómstólsins var þrettán og hálfs mánaða fangelsi. Um hundrað stuðningsmenn Wong höfðu safnast saman fyrir utan dómshúsið í morgun, en á sama tíma höfðu stuðningsmenn stjórnarinnar safnast saman og kröfðust þungs dóms yfir Wong. Tveir nánir samstarfsmenn Wong voru einnig dæmdir til fangelsisvistar í sama máli. Var hin 23 ára Agnes Chow dæmd í tíu mánaða fangelsi og hinn 26 ára Ivan Lam í sjö mánaða fangelsi. Wong og félagar hafa krafist lýðræðisumbóta í Hong Kong.
Hong Kong Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira