Toppslagur Fram og Keflavíkur í beinni í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2020 14:45 Ólafur Íshólm Ólafsson og félagar í Fram verða í eldlínunni í Keflavík í dag. Vísir/Hag
Keflavík tekur á móti Fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld en þarna mætast tvö efstu lið deildarinnar. Leikurinn átti að fara fram í gær en var frestað vegna veðurs. Leikurinn fer nú fram klukkan 16.30 í dag og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Keflavík nær toppsætinu af Fram með sigri en Fram er með tveggja stiga forskot á toppnum. Keflavík á hins vegar leik inni. Framarar hafa bara tapað einum deildarleik í sumar og það tap kom á móti Leikni Reykjavík 11. júlí eða fyrir meira en tveimur mánuðum. Síðasta tap Keflavíkurliðsins kom líka á móti Leikni en það var 28. ágúst. Leiknismenn eru einu stigi á eftir Keflavík og þremur stigum á eftir toppliði Fram. Breiðhyltingar eru því heldur með í baráttunni um sæti í Pepsi Max deildinni á næsta ári en Leiknisliðið hefur unnið báða leiki sína á móti Keflavík og er með níu stig í húsi af tólf mögulegum á móti efstu tveimur liðunum. Gömlu stórveldin eru hins vegar öll að braggast eftir mögur og litlaus ár. Keflavík og Fram eru bæði í hópi þeirra sjö félaga sem hafa oftast orðið Íslandsmeistarar karla í fótbolta en þau hafa ekki verið í efstu deild undanfarin tímabil. Fram féll úr úrvalsdeildinni árið 2014 og Keflavík hefur aðeins verið eitt tímabil í efstu deild á síðustu fimm árum. Nú gera þau sig aftur á móti bæði líkleg til að endurheimta sætið meðal þeirra bestu. Fram hefur átján sinnum orðið Íslandsmeistari, síðast árið 1990 en Keflavík hefur unnið fjóra Íslandsmeistaratitla en engan þó síðan árið 1973.
Lengjudeildin Fram Keflavík ÍF Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira