Haukar fyrstir til þess að vinna Hermann og Þrótt - Kórdrengir og Njarðvík skildu jöfn Anton Ingi Leifsson skrifar 28. ágúst 2020 21:15 Hermann Hreiðarsson er hann tók við. mynd/þróttur v
Tveir hörkuleikir fóru fram í 2. deild karla í kvöld. Haukar voru fyrstir til þess að hafa betur gegn Hermanni Hreiðarssyni og lærisveinum í Þrótti Vogum eftir að Hermann tók við og topplið Kórdrengja gerði 1-1 jafntefli við Njarðvík. Hermann hafði unnið fimm af fyrstu sjö leikjum sínum með Þrótt og gert jafntefli í hinum tveimur en í kvöld var komið að fyrsta tapinu. Tómas Ásgeirsson og Kristófer Jónsson komu Haukunum yfir snemma leiks en Alexander Helgason og Júlíus Stefánsson jöfnuðu metin fyrir Þrótt. Andri Jónasson fékk beint rautt spjald í liði Þróttar í upphafi síðari hálfleiks og Fannar Óli Friðleifsson fékk tvö gul spjöld með skömmu millibili í liði Hauka svo jafnt var í liðum á nýjan leik frá 61. mínútu. Oliver Helgi Gíslason skoraði svo sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok en í uppbótartíma fékk Andy Pew sitt annað gula spjald og þar með rautt í liði Þróttar úr Vogum. Haukar eru í 2. sætinu með 24 stig og Þróttur Vogum er í 3. sætinu með 22 stig. Í Njarðvík skildu Kórdrengir og Njarðvík 1-1 en Kórdrengir eru því áfram á toppnum með 27 stig. Njarðvík er í 6. sætinu með 21 stig. Bessi Jóhannsson kom Njarðvík yfir í fyrri hálfleik en Arnleifur Hjörleifsson jafnaði metin nítján mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 1-1 og Kórdrengir, sem er nýliði í deildinni, með þriggja stiga forskot á annað sætið og fimm stiga forskot á 3. sætið er tólf umferðir eru búnar.
Fótbolti Haukar UMF Njarðvík Mest lesið Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Íslenski boltinn Allt liðið gekk út á völl í Súperman búningum Fótbolti Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Enski boltinn „Heyri í mínum mönnum í FCK“ Fótbolti Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Enski boltinn Selvén aftur í Vestra Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Opna breska kvenna, Formúla 1 og enska C-deildin Sport „Mikil dramatík en verðskuldaður sigur“ Fótbolti „Svekktur og stoltur á sama tíma“ Fótbolti Orri Sigurður: Ekki eins og heimurinn sé að farast Fótbolti Fleiri fréttir Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ KSÍ sektar Árbæ um 250 þúsund krónur ÍR aftur á toppinn Hin efnilega Rebekka Sif til Nordsjælland frá Gróttu Sunna Rún til liðs við Íslandsmeistarana Uppbótartíminn: Hvernig lið er Stjarnan? „Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ Njarðvík á toppinn Uppgjörið: Valur - FH 2-3 | Hafnfirðingar í úrslit í fyrsta sinn FH konur ætla að skrifa söguna í kvöld KR missir sinn efnilegasta mann „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Ekroth skúrkurinn í Stúkunni: „Hann grípur um andlitið, hann veit af þessu“ Sjáðu markið sem var stolið, rauða spjaldið og alla markaveislu Stjörnunnar Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda Uppselt á Evrópuleik KA á Akureyri KR lætur þjálfarateymið fjúka Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Tómas Bent nálgast Edinborg Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Segja Jóhannes kosta tæpar tíu milljónir króna Sjáðu Pedersen jafna metið og Kennie kremja hjörtu Víkinga Uppgjörið: Fram - Víkingur 2-2 | Kennie Chopart stal stigi fyrir Fram Uppgjörið: Valur - FH 3-1 | Pedersen jafnaði markametið og Valur á toppinn Sjá meira