Bikarmeistararnir í 4. sæti | Valur sigri frá titli Sindri Sverrisson skrifar 26. febrúar 2020 21:05 Bikarmeistarar Skallagríms eru í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina. vísir/daníel
Skallagrímur komst í kvöld upp fyrir Hauka í 4. sæti í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni í Dominos-deild kvenna í körfubolta. Valur er skrefi nær öðrum deildarmeistaratitli og KR vann einnig öruggan sigur. Bikarmeistarar Skallagríms unnu Grindavík 76-66 á útivelli í kvöld og eru því með 26 stig líkt og Haukar en betri innbyrðis úrslit. Liðin eiga hins vegar eftir að mætast í Hafnarfirði í næstu umferð. Grindavík er enn með fjögur stig í neðsta sæti, tveimur stigum á eftir Breiðabliki. Keira Robinson var stigahæst Skallagríms með 21 stig, Mathilde Colding-Poulsen skoraði 19 og Emilie Hesseldal 17. Hjá Grindavík var Jordan Reynolds stigahæst með 19 stig. Íslands- og deildarmeistarar Vals eru enn með átta stiga forskot á KR á toppnum, eftir 99-74 sigur gegn Snæfelli í Stykkishólmi í kvöld. Valskonur hafa unnið þrjá leiki gegn KR í vetur og með sigri gegn KR næsta þriðjudag er liðið deildarmeistari annað árið í röð. Kiana Johnson skoraði 29 stig fyrir Val og Dagbjörg Dögg Karlsdóttir 20. Hjá Snæfelli var Amarah Coleman stigahæst með 24 stig en Emese Vida skoraði 16. KR vann svo öruggan sigur á Breiðabliki, 98-68, þar sem Sanja Orozovic skoraði 28 stig og Danielle Rodriguez var næststigahæst með 19 stig. Hjá Blikakonum er óhætt að segja að Danni Williams hafi verið í sérflokki en hún skoraði 50 stig auk þess að taka 15 fráköst.Um sigur Keflavíkur á Haukum má lesa hér en leikurinn var í beinni útsendingu.
Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Leik lokið: Keflavík - Haukar 79-74 | Keflavík hélt 3. sæti Keflavík náði tveggja stiga forskoti á Hauka og endar með betri innbyrðis úrslit úr leikjum liðanna í vetur, með mikilvægum sigri í leik liðanna í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld. 26. febrúar 2020 22:45 Mest lesið Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn Jorge Costa látinn Fótbolti „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Fleiri fréttir Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Sjá meira
Leik lokið: Keflavík - Haukar 79-74 | Keflavík hélt 3. sæti Keflavík náði tveggja stiga forskoti á Hauka og endar með betri innbyrðis úrslit úr leikjum liðanna í vetur, með mikilvægum sigri í leik liðanna í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld. 26. febrúar 2020 22:45