Juventus bjargaði stigi í lokin Valur Páll Eiríksson skrifar 6. september 2026 20:44 Serie A - Juventus FC vs AC Milan epa13218334 Juventus' Nico Gonzalez (L) and Milan's Luka Modric in action during the Italian Serie A soccer match between Juventus FC and AC Milan at the Allianz Stadium in Turin, Italy, 06 September 2026. EPA/ALESSANDRO DI MARCO Juventus og AC Milan skildu jöfn 1-1 í þriðju umferð ítölsku A-deildarinnar í fótbolta í kvöld. Minnstu munaði að gestirnir stælu öllum þremur stigunum.
Bæði lið sóttust eftir því að viðhalda fullkominni byrjun á deildinni eftir að hafa bæði unnið fyrstu tvo leiki sína. Juventus var töluvert líklegra til þess og var með öll tök í Tórínó dag. Liðið stýrði ferðinni frá A til Ö og fékk nokkur færi í fyrri hálfleik sem fóru forgörðum. Staðan var markalaus í hléi. AC Milan hefur skorað öll mörk sín í deildinni til þessa í seinni hálfleik leikjanna. Varamenn af bekknum hafa þá skorað eða lagt upp þrjú af þeim fjórum mörkum liðsins fyrir leik dagsins. AC Milan hafði gott sem ekkert getað þegar Rúben Amorim, þjálfari liðsins, gerði þrefalda skiptingu á 61. mínútu. Meðal þeirra sem komu inn á voru Alphadjo Cissé og Samuel Chukwueze. Aðeins sjö mínútum síðar átti Chukwueze sendingu á Cissé sem negldi boltann í netið til að koma AC Milan yfir og það með fyrsta skoti liðsins á mark í öllum leiknum. Algjörlega gegn gangi leiksins komst AC Milan yfir. Alpha Cissé skoraði fyrir AC Milan eftir að hafa komið af bekknum. Varamenn hafa komið að fjórum af fimm mörkum liðsins í deildinni.Giuseppe Cottini/AC Milan via Getty Images Juventus sótti fast að AC eftir markið, líkt og liðið hafði gert stærstan hluta leiksins en útlit var fyrir að gestirnir myndu stela öllum þremur stigunum. Komið var fram í uppbótartíma þegar fyrirgjöf Teun Koopmeiners frá vinstri fann höfuð miðvarðarins Filippo Gatti sem stangaði boltann í slá og inn. Juventus bjargaði því stigi og leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem liðin sættust á jafnan hlut. Bæði lið eru því með sjö stig eftir fyrst þrjá leikina líkt og Como, tveimur stigum frá Roma og Inter Milan sem eru efst með fullt hús eftir þrjá leiki.
Ítalski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira