Jesus bjargvættur Leiknis | Markalaust í Mosfellsbæ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. ágúst 2020 16:05 Jesus (t.h.) kom Leikni til bjargar með tveimur mörkum undir lok leiks. Vísir/Vefsíða Leiknis F.
Tveimur leikjum af fimm er lokið í Lengjudeild karla í dag. Leiknir Fáskrúðsfjörður vann ótrúlegan 4-3 sigur á Grindavík. Á sama tíma gerðu Afturelding og Vestri markalaust jafntefli í Mosfellsbæ. Mikil dramatík var í leik Leiknis Fáskrúðsfjarðar og Grindavíkur sem fram fór í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Sigurður Bjartur Hallsson kom gestunum yfir þegar rúmur hálftími var liðinn og var það eina mark fyrri hálfleiks. Guðmundur Magnússon tvöfaldaði forystu gestanna þegar tæpur klukkutími var liðinn en þegar sex mínútur voru til leiksloka fór af stað hreint út sagt ótrúleg atburðarrás. Ásgeir Páll Magnússon minnkaði muninn fyrir heimamenn á 84. mínútu og mínútu síðar jafnaði Stefán Ómar Magnússon metin fyrir heimamenn. Gunnar Þorsteinsson kom Grindavík aftur yfir tveimur mínútum síðar, þrjú mörk á fjórum mínútum takk fyrir. Þá var komið að Jesus Maria Meneses Sabater í liði Leiknis F. en hann jafnaði metin á 90. mínútu og skoraði svo sigurmark leiksins þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Í millitíðinni fékk Elias Tamburini rautt spjald í liði Grindavíkur. Lokatölur 4-3 í hreint út sagt ótrúlegum leik. Leiknir F. er með 10 stig eftir níu leiki og sitja í níunda sæti deildarinnar. Aðeins stigi á eftir Grindavík. Í Mosfellsbæ var Vestri í heimsókn og lauk leiknum með markalausu jafntefli. Bæði lið fara upp fyrir Grindavík í töflunni. Vestri er í 6. sæti með 12 stig á meðan Afturelding er sæti neðar með 11 stig. Markaskorarar fengnir af Fótbolti.net.
Fótbolti Íslenski boltinn Lengjudeildin Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Aron Þórður hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira