Slagorð krotuð á Litlu hafmeyjuna í Kaupmannahöfn Kjartan Kjartansson skrifar 13. janúar 2020 10:38 Krotað var á steininn sem styttan af Litlu hafmeyjunni situr á í skjóli nætur. AP/Thomas Sjørup
Óþekktir skemmdarvargar krotuðu slagorð til stuðnings mótmælendum í Hong Kong á styttuna af Litlu hafmeyjunni í Kaupmannahöfn í nótt. Fleiri en milljón ferðamanna ber styttuna augum á ári hverju en hún er sögð sérstaklega vinsæl hjá kínverskum ferðalöngum. „Frjáls Hong Kong“ hafði verið krotað á tveimur stöðum á steininn sem hafmeyjan situr á með rauðri og hvítri málningu í morgun. AP-fréttastofan segir að lögregla með leitarhund hafi leitað að vísbendingum um sökudólgana snemma í morgun en enginn hafi verið handtekinn til þessa. Fjölmenn mótmæli hafa staðið yfir í Hong Kong um fleiri mánaða skeið. Mótmælendur þar krefjast lýðræðis og andæfa kínverskum yfirráðum. Reuters-fréttastofan segir að Litla hafmeyjan sér sérstaklega vinsæll viðkomustaður Kínverja sem heimsækja Kaupmannahöfn. Styttan af Litlu hafmeyjunni er tileinkuð skáldinu H.C. Andersen og hefur ítrekað orðið fyrir skemmdarverkum í gegnum tíðina. Hún hefur þannig verið sprengd af stalli sínum, afhöfðuð og verið útmáluð í veggjakroti.
Danmörk Hong Kong Kína Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira