Búast við óvissustigi og lokunum á morgun Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 3. janúar 2020 21:16 Vetrarfærð er nú víða á landinu. Vísir/Vilhelm
Vegagerðin býst við því að Hellisheiði, Þrengsli, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði verði á óvissustigi á morgun, laugardag. Komið gæti til lokana á vegunum á milli 9 og 16 vegna veðurs og ófærðar. Þetta gildir einnig um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði, Hófaskarð, Mývatnsöræfi, Mýrdalssand, Reynisfjall og svæðið undir Eyjafjöllum á milli 12 og 20. Vetrarfærð er í flestum landshlutum og víða éljagangur eða skafrenningur. Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugular og gular viðvaranir fyrir landið. Hríðarviðvaranir eri í gildi á öllu landinu fyrir morgundaginn. Að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar verða appelsínugular viðvaranir í gildi á morgun frá klukkan 8 til 15 á Suðurlandi, frá klukkan 9 til 15 á Faxaflóa, frá 11 til 16 á Breiðafirði og á miðhálendinu frá klukkan 11 til 18. Svona var viðvörunarspá Veðurstofunnar þegar hún var síðast uppfærð klukkan átta í kvöld.Skjáskot/Veðurstofa Íslands Í öðrum landshlutum eru gular viðvaranir í gildi á morgun, þó mislengi, sums staðar hluta úr degi en annars staðar allan daginn. Þannig er gul viðvörun í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið frá klukkan 9 til 14. Einnig er gul viðvörun á Vestfjörðum frá 12 til 17 og Ströndum og Norðurlandi vestra frá 12 til 17:30. Á Norðurlandi eystra er gul viðvörun frá 13 til 16:30 og á Austurlandi að Glettingi frá 14 til 17. Á Austfjörðum er gula viðvörunin í gildi frá 14 til 18 en á Suðausturlandi frá 12 til 17. Síðdegis á morgun hlánar samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands svo gott er að athuga að niðurföllum svo vatn eigi greiða undankomuleið. Ráðlagt er að fylgjast vel með veðurspám og færð á vegum.
Samgöngur Veður Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Sjá meira