Tilkynnt um hugsanlega sprengju á leikskólalóð Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. janúar 2020 22:06 Lögreglan var kölluð til vegna hugsanlegrar sprengju á leikskóla í Breiðholti. Vísir/Vilhelm
Leikskólastjóri á leikskóla í Breiðholti tilkynnti lögreglu um hugsanlega sprengju með kveikiþræði á lóð leikskólans um klukkan hálftvö í dag. Að því er fram kemur í dagbók lögreglu var um að ræða pappahólk, líklega innan úr skottertu eða flugeld, sem var búið að líma saman með límbandi. Sá sérsveit ríkislögreglustjóra um að fjarlægja hlutinn og eyða honum en ekki er vitað hver kom þessu fyrir á lóðinni. Þá barst tilkynning um íþróttaslys í Garðabæ klukkan 15:18. Tíu ára stúlka var við fimleikaæfingar þegar hún slasaðist með þeim afleiðingum að hún líklega handleggsbrotnaði á báðum handleggjum. Var stúlkan flutt með sjúkrabíl á slysadeild. Á þriðja tímanum óskaði starfsfólk verslunar í Hafnarfirði eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem var að reyna að borga fyrir vörur með fölsuðum peningaseðli. Seðillinn var haldlagður en við skýrslutöku á vettvangi neitaði sakborningur öllum sakargiftum. Skömmu fyrir klukkan tvö óskuðu erlendir ferðamenn eftir aðstoð þar sem þeir höfðu fest bílaleigubíl í snjó á Nesjavallaleið. Vegurinn var merktur ófær en ferðamennirnir sögðust ekki hafa tekið eftir skiltinu. Lögreglumenn á jeppa sóttu ferðamennina og fluttu í bæinn.
Garðabær Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira