97 létust í flugslysinu Sylvía Hall skrifar 23. maí 2020 17:38 Svartur mökkur steig upp frá slysstað og að minnsta kosti fimm hús eru gjörónýt eftir slysið. Vísir/getty
Í það minnsta 97 létust þegar pakistönsk farþegaþota brotlenti í íbúðarhverfi í borginni Karachi í gær. Flugriti vélarinnar er fundinn og munu flugmálayfirvöld rannsaka slysið. Tveir komust lífs af úr slysinu en vélin var af gerðinni Airbus A320 og var á leið frá Lahore til Karachi með 99 farþega um borð. Enginn á jörðu niðri lést af völdum slyssins og er talið að aðeins farþegar vélarinnar séu á meðal hinna látnu. Vélin hafði verið að reyna að gera aðra tilraun til lendingar þegar slysið varð en síðustu skilaboð frá flugstjóra vélarinnar var tilkynning um tæknileg vandamál. Nokkrum sekúndum fyrir brotlendingu vélarinnar tilkynnti flugstjórinn flugumferðarstjórn að báðir hreyflar vélarinnar væru hættir að virka að því er fram kemur á vef Reuters. Svartur mökkur steig upp frá slysstað og að minnsta kosti fimm hús eru gjörónýt eftir slysið. Tahir Hussain, flugvirki hjá flugfélaginu, varð vitni að slysinu og sagði slysið hafa hljómað eins og jarðskjálfta. „Við heyrðum gífurlegan hvell. Þetta hljómaði ekki eins og brotlending heldur meira eins og jarðskjálfti. Við héldum að veggur eða vatnstankur hefði hrunið en þegar við vorum komin upp á þak sáum við reyk úti um allt.“ Neyðarástandi var lýst yfir á öllum sjúkrahúsum borgarinnar, en töluvert álag er nú þegar á spítölunum vegna kórónuveirunnar.
Pakistan Tengdar fréttir Tugir fórust í flugslysinu í Pakistan Að minnsta kosti þrjátíu og sjö fórust og enn fleiri er saknað eftir að pakistönsk farþegaflugvél brotlenti í íbúðahverfi í borginni Karachi í dag. Þremur hefur verið bjargað enn sem komið er, tveimur farþegum og einum íbúa hverfisins. 22. maí 2020 18:00 Flugvél hrapaði á íbúðahverfi í Pakistan Flugvél Pakistan International Airlines hefur hrapað til jarðar á íbúðasvæði nærri Jinnah alþjóðaflugvellinum í Karachi. 107 voru um borð. 22. maí 2020 10:27 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Tugir fórust í flugslysinu í Pakistan Að minnsta kosti þrjátíu og sjö fórust og enn fleiri er saknað eftir að pakistönsk farþegaflugvél brotlenti í íbúðahverfi í borginni Karachi í dag. Þremur hefur verið bjargað enn sem komið er, tveimur farþegum og einum íbúa hverfisins. 22. maí 2020 18:00
Flugvél hrapaði á íbúðahverfi í Pakistan Flugvél Pakistan International Airlines hefur hrapað til jarðar á íbúðasvæði nærri Jinnah alþjóðaflugvellinum í Karachi. 107 voru um borð. 22. maí 2020 10:27