Réttarhöld í máli skipstjórans á Dóná hefjast Atli Ísleifsson skrifar 11. mars 2020 14:13 Slysið átti sér stað undir Margrétarbrúnni í Búdapest að kvöldi 29. maí síðastliðinn. EPA
Réttarhöld í máli skipstjóra skemmtiferðaskips sem rakst á smærri útsýnisbát á Dóná í ungversku höfuðborginni Búdapest með þeim afleiðingum að 28 manns fórust, hófust í dag. Útsýnisbáturinn sökk fáeinum sekúndum eftir áreksturinn, en flestir um borð voru suður-kóreskir ferðamenn. Atvikið átti sér stað í maí síðastliðinn. Yuri Chaplinsky, 64 ára úkraínskur skipstjóri skemmtiferðaskipsins Vikyn Sigyn, neitar því sem fram kemur í ákæru. Er hann sakaður um vanrækslu sem leiddi til dauða fjölda manns og að ekki hafa aðstoðað þá sem höfnuðu í ánni sem skyldi. Segja saksóknarar hann ekki hafa fylgst nægilega vel með ferð skipsins þar sem hann stýrði skipinu. Úrhelli var á svæðinu þegar slysið varð. Slysið var það mannskæðasta á Dóná í heil þrjátíu ár. Chaplinsky hefur áður hafnað boð um sátt sem hefði falist í níu ára fangelsisvist og níu ár til viðbótar án skipstjórnarréttinda. Hann hafði starfað á ánni í fjörutíu ár og þar af þrjátíu sem skipstjóri. Áreksturinn varð undir Margrétarbrúnni í Búdapest um klukkan 21 að kvöldi 29. maí síðastliðinn. Alls voru 35 manns um borð í útsýnisbátnum og tókst að bjarga átta þeirra.
Ungverjaland Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira