Sportpakkinn: Fyrrverandi leikmaður Barcelona gerði Real Madrid grikk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. mars 2020 17:30 Cristian Tello skoraði sigurmark Real Betis gegn Real Madrid. vísir/getty
Cristian Tello tryggði Real Betis óvæntan sigur á Real Madrid, 2-1, á Estadio Benito Villamarín í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Guðjón Guðmundsson fór yfir leikinn. Real Madrid þurfti að vinna Real Betis á útivelli til að endurheimta toppsæti spænsku úrvalsdeildarinnar. Gestirnir frá Madríd lentu í miklum vandræðum gegn Betis sem hafði ekki unnið leik frá 19. janúar. Brasilíski varnarmaðurinn Sidnei kom Betis yfir með föstu skoti í slá og inn á 40. mínútu. Hann kom aftur við sögu í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann braut á landa sínum, Marcelo, innan vítateigs. Karim Benzema fór á punktinn og skoraði af öryggi framhjá Joel Robles í marki Betis. Á 82. mínútu fékk Tello sendingu inn fyrir vörn Real Madrid frá Andrés Guardado og setti boltann af öryggi í netið. Tello er fyrrverandi leikmaður Barcelona og hefur væntanlega ekki leiðst að skora gegn Real Madrid. Madrídingar hafa aðeins unnið einn af síðustu fjórum deildarleikjum sínum, gegn Börsungum á Santiago Bernabéu um síðustu helgi. Real Madrid er með 56 stig í 2. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Barcelona þegar ellefu umferðir eru eftir. Betis er í 12. sæti deildarinnar með 33 stig. Fréttina í heild sinni má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Sportpakkinn: Real Madrid missteig sig í Andalúsíu
Spænski boltinn Sportpakkinn Tengdar fréttir Madridingar misstigu sig gegn Real Betis Real Madrid tókst ekki að endurheimta toppsætið í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. 8. mars 2020 22:00 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Sjá meira
Madridingar misstigu sig gegn Real Betis Real Madrid tókst ekki að endurheimta toppsætið í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. 8. mars 2020 22:00