Dregur til tíðinda á föstudag eftir rólega daga Kristín Ólafsdóttir skrifar 12. nóvember 2019 06:59 Skörp skil fara yfir landið úr vestri á föstudag. Vísir/vilhelm
Rólegra veður er í vændum næstu daga en verið hefur undanfarið, ef marka má hugleiðingar veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands: „Skilin sem hafa strítt okkur með sínum óútreiknanlegu lægðahnútum eru nú að trosna yfir landið.“ Næst dregur til tíðinda í veðrinu á föstudag. Búast má við suðaustan- og austangolu eða -kalda í dag með skúrakenndri úrkomu, jafnvel slydduéljum, sunnan- og vestanlands. Þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi. Köld norðaustanátt færist svo yfir í nótt og á morgun með éljum norðaustantil en léttir til sunnan- og vestanlands. Fremur rólegur vindur og frystir þá um mestallt land. Svipað veður á fimmtudag en breyting verður á um helgina. „Það dregur síðan til tíðinda á föstudag þegar næstu skil koma að landi úr vestri en þau virðast ætla að sigla hratt yfir landið og í kjölfar þeirra kólnar aftur í útsynningi með éljum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Norðaustlæg átt 3-10 m/s og dálítil él NA-lands, en léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert. Frost víða 0 til 7 stig og talsvert næturfrost inn til landsins.Á fimmtudag:Norðlæg átt, 3-10 m/s og léttskýjað, en lítilsháttar él með NA-ströndinni. Áfram frost um mest allt land, einkum inn til landsins. Vaxandi sunnanátt vestast um kvöldið og þykknar upp.Á föstudag:Hvöss sunnanátt með talsverðri rigningu og hlýnar, en slyddu eða snjókomu í fyrstu fyrir norðan. Vestlægari með deginum, fyrst V-til undir hádegi, með skúrum eða éljum og kólnar aftur.Á laugardag:Suðvestlæg átt, 5-13 og él, en léttskýjað A-til á landinu. Víða frostlaust við V-ströndina, en annars frost 1 til 7 stig og kaldast í innsveitum NA-lands.Á sunnudag:Dregur úr vindi og éljum og áfram bjart A-lands. Hiti breytist lítið.Á mánudag:Útlit fyrir stífa suðaustanátt með rigningu, en þurrt NA-lands. Hlýnandi.
Veður Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Sjá meira