Flugvél Icelandair snúið við til Keflavíkur eftir að brunaboði fór í gang Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. nóvember 2019 09:20 Flugvélin lenti heilu og höldnu í Keflavík á níunda tímanum. Myndin er úr safni. Vísir/vilhelm
Flugvél Icelandair sem tók af stað til Berlínar í morgun var snúið við skömmu eftir flugtak. Viðbúnaður var ræstur út á Keflavíkurflugvelli í samræmi við verklagsreglur en vélin lenti heilu og höldnu á vellinum á níunda tímanum. RÚV greindi fyrst frá. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia staðfestir í samtali við Vísi að ósk hafi komið frá flugstjóra um að snúa vélinni við. Hún hafi ekki verið lengi í loftinu þegar boðið barst. Í samræmi við viðbragðsáætlanir hafi verið virkjað rautt viðbúnaðarstig á flugvellinum og slökkvilið og sjúkraflutningafólk kallað út. Ekki náðist í Ásdísi Ýri Pétursdóttur upplýsingafulltrúa Icelandair við vinnslu þessarar fréttar en hún segir í samtali við RÚV að brunaboði hafi verið í gang í flugvélinni og því ákveðið að snúa við til Keflavíkur. Þá hafi væg reykjarlykt fundist um borð við lendingu en engin hætta hafi verið á ferð. Farþegar og áhöfn hafi verið flutt í aðra vél sem fari til Berlínar nú rúmlega níu.
Fréttir af flugi Icelandair Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira