Innlent

Bíði og bíði eftir Bjarna

Agnar Már Másson og Telma Tómasson skrifa
„Við teljum að við höfum ekki endalausan tíma,“ segir Halla Gunnarsdóttir.
„Við teljum að við höfum ekki endalausan tíma,“ segir Halla Gunnarsdóttir.

Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13.

Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. 

Frestur til uppsagnar rennur út síðdegis á fimmtudaginn en í morgun fundaði félagið með Samtökum atvinnulífsins.

„Það er aldeilis að renna upp örgurstund og við erum á krossgötum þess að það fari allt í átök og erfiðleika í vetur eða að fólk setjist niður og finni einhverja lausn sem virkar,“ segir Halla Gunnarsóttir, formaður VR, en hún var til viðtals í útvarpsfréttum Bylgjunnar klukkan 16.

Halla segist hafa hitt fulltrúa SA á fundi í morgun og lagt þar tillögur að lausnum. 

„Og ég hafði væntingar um það að við myndum hittast fljótlega aftur eftir hádegi og við myndum loka okkur inni þar til við værum komin með niðurstöðu,“ segir hún.

Halla tekur fram að fulltrúar VR, Landssambands íslensra verzlunarmanna auk fagfélaganna hafi beðið frá því um klukkan 13 eftir því að fulltrúar SA komi til samtals. Fulltrúar verkalýðsfélaganna og SA hafi þó skipst á einhverjum skilaboðum.

„En það virðist vera eitthvað langt á milli húsa í Borgartúninu og þau eru allavega enn ekki komin,“ segir Halla. 

„Við teljum að við höfum ekki endalausan tíma.“

Nú eru tveir sólarhringar til stefnu.

Hvað ætlið þið að sitja lengi að bíða?

„Við förum kannski heim og leggjum okkur í nótt ef á þarf að halda, en við viljum vera þarna þar til viðunandi lausn er fundin fyrir alla aðila og við getum sameinast um þetta verkefni að reyna hérna að ná tökum á efnahagsmálum og ná verðbólgunni niður.“

Ekki náðist í Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, við vinnslu fréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×